Hernaður
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 54 ›
Bandaríkin eyða síðustu efnavopnum sínum Flugskeyti með saríngasi sem unnið er að því að eyða á herstöð í Kentucky eru síðustu efnavopn Bandaríkjanna. Síðustu birgðunum verður eytt fyrir lok september í samræmi við efnavopnasáttmálans sem 193 ríki skrifuðu undir árið 1997. Erlent 7.7.2023 09:01
Saka hver annan um að ætla sér að ráðast á kjarnorkuverið Úkraínumenn og Rússar saka hver annan um að ætla sér að ráðast á Zaporizhzhia-kjarnorkuverið í suðaustanverðri Úkraínu. Hvorugir þeirra hafa þó lagt fram sannanir fyrir fullyrðingum sínum. Erlent 5.7.2023 15:18
Þrír drónar skotnir niður nærri Moskvu Þrír drónar voru skotnir niður í Rússlandi í nótt, tveir nærri Moskvu og einn í Kaluga-héraði. Samkvæmt rússnesku fréttastofunni Tass voru drónarnir allir á leið í átt að höfuðborginni, á mismunandi tíma. Erlent 4.7.2023 06:55
Segja aðgerðirnar á Vesturbakkanum geta varað í fleiri daga Fulltrúi Ísraelshers segir að aðgerðir hans gegn vígahópum á Vesturbakkanum gætu varað í nokkra daga. Átta Palestínumenn eru nú sagðir látnir í aðgerðum Ísraelsmanna sem er lýst sem þeim umfangsmestu í tuttugu ár. Erlent 3.7.2023 16:01
Rússar viðurkenna að hafa flutt um 700.000 börn frá Úkraínu Rússar hafa viðurkennt að hafa flutt 700 þúsund börn frá Úkraínu og til Rússlands frá því að innrásin hófst. Þeir segja um að ræða aðgerðir til að vernda munaðarleysingja og börn sem hafa verið yfirgefin á átakasvæðum. Erlent 3.7.2023 06:41
Segir Rússa hugsanlega ætla að sprengja kjarnorkuver Úkraínuforseti segir að Rússar gætu verið að undirbúa sig fyrir það að sprengja Zaporizhzhia-kjarnorkuverið, stærsta kjarnorkuver Evrópu. Erlent 2.7.2023 09:40
Telja hershöfðingja hafa vitað af áformum Prigozhin Bandaríska leyniþjónustan telur að háttsettur rússneskur hershöfðingi hafi vitað af því að Jevgeníj Prigozhin, leiðtogi Wagner-málaliðahersins, ætlaði að gera uppreisn gegn hermálayfirvöld fyrir fram. Forseti Hvíta-Rússlands segist hafa komið í veg fyrir að Pútín Rússlandsforseti léti drepa Prigozhin. Erlent 28.6.2023 11:43
Þrjú börn meðal tíu látinna eftir árás Rússa á Kramatorsk Að minnsta kosti tíu eru látnir eftir árás Rússa á Kramatorsk í gær, þeirra á meðal þrjú börn. Sextíu eru sagðir særðir og þá var þremur bjargað undan húsarústum. Erlent 28.6.2023 10:37
Valdarán ekki ætlunin heldur að koma í veg fyrir upplausn Wagner Jevgeníj Prigozhin, eigandi málaliðahersins Wagner-hópsins, segir að markmið uppreisnar hans gegn rússneskum heryfirvöldum um helgina hafi verið að koma í veg fyrir að hópurinn væri leystur upp, ekki að ræna völdum. Hópurinn hafi stoppað til að komast hjá fyrirsjáanlegu blóðbaði. Erlent 26.6.2023 16:02
Shoigu sagður hafa heimsótt hersveitir Rússa í Úkraínu Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, heimsótti hersveitir landsins í Úkraínu í gær en þetta er í fyrsta sinn sem sést til varnarmálaráðherrans eftir valdaránstilraun Yevgeny Prigozhin og Wagner-liða um helgina. Erlent 26.6.2023 06:55
Valdaránið blásið af og algjör óvissa um framhaldið Yevgeny Prigozhin, stofnandi og stjórnandi Wagner-málaliðahópsins, hefur komist að samkomulagi við Alexander Lúkasjenkó, forseta Belarús, um að láta af uppreisn sinni gegn hermálayfirvöldum í Rússlandi. Erlent 24.6.2023 21:00
Wagner-liðar fá sakaruppgjöf og Prigozhin fer til Belarús Yevgeny Prigozhin, leiðtogi Wagner málaliðahópsins, hefur lýst því yfir að uppreisninni sé lokið. Þetta kemur fram í ávarpi sem hann sendi frá sér nú síðdegis. Hann segist hafa náð samkomulagi við Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta Rússlands, um að binda enda á uppreisnina. Erlent 24.6.2023 07:03
Vaktin: Prigozhin segir menn sína komna inn í Rostov Samkvæmt nýjustu fregnum hefur Yevgeny Prigozhin, stofnandi og stjórnandi málaliðahópsins Wagner, sent frá sér enn ein skilaboðin þar sem hann segir Wagner-liða komna inn í borgina Rostov í suðurhluta Rússlands. Erlent 24.6.2023 00:09
Wagner í hart gegn rússneska hernum og Prigozhin eftirlýstur Yevgeny Prigozhin, rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn Wagner Group og hefur tekið virkan þátt í innrás Rússa í Úkraínu, lýsti því yfir í kvöld að leiðtogaráð Wagner hefði ákveðið að fara í hart gegn leiðtogum Varnarmálaráðuneytis Rússlands og að „rústa“ öllum sem standa í vegi þeirra. Erlent 23.6.2023 20:59
Gengur hægar en vonast var eftir Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir gagnsókn Úkraínumanna ganga hægar en vonast var eftir. Henni verði þó haldið á þeim hraða sem Úkraínumenn kjósa. Ekki sé um Hollywood kvikmynd að ræða, heldur séu líf í húfi. Erlent 21.6.2023 14:41
„Til fjandans með þá“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði í dag að til greina kæmi að beita kjarnorkuvopnum, ef öryggi Rússlands væri ógnað. Þá sagði Pútín að Rússar myndi ekki fækka kjarnorkuvopnum sínum, sama hvurslags samkomulag Vesturlönd reyndi að gera við Rússland. Erlent 16.6.2023 22:30
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Maraþon en ekki spretthlaup“ Harðir bardagar hafa geisað í suður- og austurhluta Úkraínu undanfarnar daga, þar sem gagnsókn Úkraínumanna er hafin. Nokkur þorp hafa verið frelsuð úr höndum Rússa en Úkraínumenn hafa sótt tiltölulega grunnt inn í varnir Rússa en á víðu svæði. Erlent 16.6.2023 08:01
Segja að 150 börnum hafi verið rænt og þau flutt til Rússlands Yfirvöld í Úkraínu segja að 150 börnum hafi verið rænt í Starobilsk í Luhansk 8. júní síðastliðinn og flutt á tvær stofnanir í Prikuban í Karachay-Cherkess í Rússlandi. Erlent 16.6.2023 07:02
Úkraínumenn og Svíar sitja enn á hliðarlínu Atlantshafsbandalagsins Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins munu ekki leggja fram tímasetta áætlun um inngöngu Úkraínu á næstu ráðstefnu Nató í Vilníus í júlí heldur lofa styttra umsóknarferli þegar Úkraína fær boð um inngöngu, einhvern tímann þegar átökunum í landinu er lokið. Erlent 14.6.2023 12:23
Segir Rússa hafa misst 54 skriðdreka á nokkrum dögum Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í skyn að hann myndi skipa rússneska hernum að ráðast aftur inn í norðurhluta Úkraínu. Hann hélt því fram að Úkraínumenn hefðu orðið fyrir gífurlegu mannfalli í gagnsókn þeirra, sem er nýhafin í suður- og austurhluta Úkraínu. Erlent 13.6.2023 17:15
Segja kjarnorkuvopnum fjölga og heimsbyggðina fljóta að feigðarósi Kjarnavopnum er að fjölga á ný að sögn sérfræðinga hugveitunnar Stockholm International Peace Research Institute (Sipri), sem vara við því að heimsbyggðin sé að sigla inn í „hættulegasta tímabil mannkynssögunnar“. Erlent 12.6.2023 06:42
Segjast hafa endurheimt fyrstu þorpin Úkraínumenn segjast hafa endurheimt þrjú þorp í Dónetsk-héraði úr höndum Rússa. Úkraínuforseti staðfesti í gær að gagnsókn úkraínska hersins væri hafin. Erlent 11.6.2023 21:17
„Eins og að lenda á stálvegg“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í gær að gagnsókn Úkraínumanna væri hafin. Hann gaf lítið fyrir orð Valdimír Pútín, forseta Rússlands, um að gagnsóknin hefði engum árangri skilað og bað blaðamenn þess í stað um að koma því til Pútíns að úkraínskir herforingjar væru í góðu skapi þessa dagana. Erlent 11.6.2023 08:53
Hlébarðarnir sjást í fyrsta sinn á víglínunum Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmiklar árásir gegn Rússum í Sapórisjía-héraði en þýskir skriðdrekar af gerðinni Leopard hafa sést á víglínunum í fyrsta sinn. Erlent 8.6.2023 10:43
600 ferkílómetrar undir vatni og jarðsprengjur á víð og dreif Um 600 ferkílómetrar lands eru nú undir vatni eftir að Kakhova-stíflan í Dnipro-ánni í Úkraínu brast í fyrradag. Þetta segir héraðsstjórinn í Kherson en 68 prósent tjónsins er þó á austurbakkanum, landi sem Rússar hafa stjórn á. Erlent 8.6.2023 07:17
Stór sprenging inni í stíflunni líklegasta orsökin Líklegasta ástæða þess að Kakhovka-stíflan í Kherson-héraði í Úkraínu brast, er að miklu magni sprengiefna hafi verið komið fyrir inni í stíflunni og hún sprengd. Aðrar ástæður eins og eldflaugaárás og mikið álag eru mögulegar en mun ólíklegri. Erlent 7.6.2023 11:30
Unnið að rýmingu og Selenskí boðar til neyðarfundar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur boðað til neyðarfundar vegna eyðileggingar Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson. Unnið er að rýmingu vegna flóðahættu. Úkraínuher segir Rússa hafa sprengt stífluna en leppstjórn þeirra á svæðinu segir um hryðjuverk að ræða. Erlent 6.6.2023 06:19
Er gagnsókn Úkraínumanna hafin? Úkraínumenn eru byrjaðir að gera árásir í suðausturhluta Úkraínu. Fregnir hafa borist af tiltölulega smáum árásum í Dónetsk- og Sapórisjía-héruðum og eru Úkraínumenn sagðir hafa náð einhverjum árangri. Erfitt er þó að sannreyna fregnirnar að svo stöddu. Erlent 5.6.2023 14:54
Málaliðar Wagner handsömuðu og börðu rússneskan ofursta Málaliðar Wagner Group lentu á dögunum í skotbardaga við rússneska hermenn nærri Bakhmut. Bardaginn endaði með því að málaliðarnir handsömuðu rússneskan undirofursta, börðu hann og þvinguðu hann til að játa að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á málaliðana. Erlent 5.6.2023 12:45
Stríð milli Kína og Bandaríkjanna „óbærilegar hörmungar“ Hershöfðinginn Li Shangfu, sem tók við embætti varnarmálaráðherra Kína í mars síðastliðnum, segir að stríð við Bandaríkin yrðu „óbærilegar hörmungar“. Ummælin lét hann falla á ráðstefnu um öryggismál, þar sem hann sagði „sum ríki“ vera að kynda undir vopnakapphlaup í Asíu. Erlent 5.6.2023 10:31