Hernaður
28 29 30 31 32 33 34 35 36 … 54 ›
Hvetja þá sem hafa flúið til að halda sig erlendis út veturinn Stjórnvöld í Úkraínu hafa biðlað til þeirra Úkraínumanna sem hafa flúið land frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar síðastliðnum, um að snúa ekki aftur fyrr en í vor. Orkuinnviðir landsins ráði einfaldlega ekki við mannfjöldann. Erlent 26.10.2022 07:12
Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. Erlent 26.10.2022 06:52
Bandarískur flugmaður sem vann í Kína handtekinn í Ástralíu Bandarískur maður sem var flugmaður í landgönguliði Bandaríkjanna var nýverið handtekinn í Ástralíu og stendur til að framselja hann í Bandaríkjunum. Kínverjar eru sagðir hafa leitað til vestrænna flugmanna varðandi þjálfun í Kína. Erlent 25.10.2022 11:54
„Kokkur Pútins“ ræddi við hann og gagnrýndi leiðtoga hersins Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gengið hefur undir nafninu „kokkur Pútíns“, ræddi nýverið við Vladimír Pútin, forseta Rússlands, og gagnrýndi það hvernig haldið hefði verið á spöðunum varðandi innrás Rússa í Úkraínu. Gagnrýnin beindist mest að leiðtogum rússneska hersins en Prigozhin og aðrir hafa gagnrýnt herinn opinberlega að undanförnu. Erlent 25.10.2022 10:28
Vilja að öryggisráðið ræði staðlausar áhyggjur af„skítugri sprengju“ Rússnesk yfirvöld hafa ekki gefist upp á að halda því fram að Úkraínumenn ætli sér að sprengja geislavirka sprengju, þrátt fyrir verulegar efasemdir vestrænna ríkja. Þeir vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna taki málið fyrir. Erlent 25.10.2022 07:28
Segir fáránlegt að vopn Rússa séu á þrotum Fyrrverandi forseti Rússlands segir fáránlegt að miðlar lýsi því yfir að birgðir Rússa klárist hratt. Vopnaframleiðsla gangi vonum framar. Erlent 24.10.2022 22:13
Gjalda varhug við torkennilegu drónaflugi við norska borpalla Norsk stjórnvöld hafa aukið eftirlit varðskipa og orrustuþotna við borpalla í Norðursjó vegna óþekktra dróna sem hafa sést á flugi nærri þeim upp á síðkastið. Óttast þau að þar kunni að vera spellvirki og bellibrögð Rússa í uppsiglingu. Erlent 24.10.2022 12:49
„Það er mjög alvarleg staða komin upp“ Rússar hafa lagt sérstaka áherslu á orkuinnviði í árásum sínum í Úkraínu síðustu daga. Kynding er af skornum skammti í landinu og veturinn nálgast óðfluga. Prófessor segir að mjög alvarleg staða sé komin upp. Erlent 23.10.2022 15:01
Aftur hrapaði rússnesk herþota á íbúðarhús Rússnesk herþota hrapaði til jarðar á íbúarhús í Irkutsk í Síberíu í nótt. Tveir flugmenn vélarinnar létust. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum sýna herþotuna hrapa til jarðar. Erlent 23.10.2022 13:36
Rafmagnslaust eftir árásir Rússa Rafmagnsleysi er víða í vesturhluta Úkraínu vegna eldflaugaárásir Rússa í nótt en þeir eru sagðir hafa ráðist á orkuinnviðum. Takmarkanir eru á rafmagnsnotkun í Úkraínu. Erlent 22.10.2022 09:50
Segir Rússa hafa í hyggju að eyðileggja 400 kílómetra áveitu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa í hyggju að eyðileggja vatnsaflsvirkjun og stíflu í austurhluta Kherson-héraðs, þar sem Úkraínumenn hafa sótt hart gegn innrásarhernum. Erlent 21.10.2022 08:11
Kjarnorkuárás Rússa yrði svarað af „bandalagi viljugra“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir aðildarríki Nató munu bregðast við ef Rússar beita Svíþjóð eða Finnland einhvers konar þrýstingi eða ógnum áður en ríkin verða fullgild aðildarríki að bandalaginu. Erlent 20.10.2022 08:57
Herlög taka gildi á „innlimuðum“ svæðum í Úkraínu Herlög taka gildi í dag í héruðunum fjórum í Úkraínu sem Rússar vilja meina að þeir hafi innlimað á dögunum. Frá þessu greindi Vladimir Pútín Rússlandsforseti þegar hann ávarpaði fund þjóðaröryggis Rússlands nú fyrir stundu. Erlent 19.10.2022 12:29
Segir stöðu Rússa erfiða og ýjar að undanhaldi Nýr yfirmaður innrásar Rússa í Úkraínu sagði í dag að taka þyrfti „erfiðar ákvarðanir“ á næstunni í Kherson-héraði í Úkraínu. Leppstjórar Rússlands þar hafa sagt að til standi að flytja fólk frá Kherson-borg en ummælin þykja til marks um að Rússar muni mögulega hörfa yfir Dnipro-á. Erlent 18.10.2022 22:19
Senda dróna og eldflaugar til Rússa Ráðamenn í Íran hafa samþykkt að selja Rússum mikið magn eldflauga og dróna. Þau vopn munu Rússar væntanlega nota til að gera árásir á skotmörk í Úkraínu en þær árásir Rússa beinast að mestu gegn borgaralegum skotmörkum og hafa verið fordæmdar sem stríðsglæpir. Erlent 18.10.2022 18:17
Vilja grípa til lagasetningar til að koma í veg fyrir ráðningar til Kína Breskir ráðherrar vilja breyta lögum til að koma í veg fyrir að fyrrverandi flugmenn breska flughersins séu Kínverjum innan handar við þjálfun herflugmanna. Erlent 18.10.2022 10:44
Fordæma drónaárásir Rússa á óbreytta borgara Hvíta húsið fordæmdi í dag sjálfsprengidrónaárásir Rússa á borgaraleg skotmörk í borgum og bæjum Úkraínu. Talskona Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi að Bandaríkjamenn myndu standa áfram við bakið á Úkraínumönnum og að Rússar myndu gjalda fyrir stríðsglæpi þeirra í Úkraínu. Erlent 17.10.2022 23:54
Orrustuþota brotlenti á fjölbýlishúsi í Rússlandi Rússnesk orrustuþota brotlenti á fjölbýlishúsi í borginni Yeysk í suðurhluta Rússlands í dag. Minnst tveir eru látnir en mikill eldur kviknaði í húsinu við brotlendinguna. Erlent 17.10.2022 18:07
Ungt par meðal látnu í Kænugarði Að minnsta kosti þrír létu lífið og þrír særðust í drónaárásum Rússa á Kænugarð í morgun. Nítján var bjargað úr rústum íbúðabyggingar en björgunaraðgerðir standa yfir. Fleiri árásir áttu sér stað í Úkraínu í morgun en heildarfjöldi látinna liggur ekki fyrir. Erlent 17.10.2022 11:56
Röð drónaárása í Kænugarði í morgun Loftvarnarflautur hljómuðu í Kænugarði í morgun og í kjölfarið heyrðist röð sprenginga sem ráðamenn segja hafa verið af völdum íranskra svokallaðra „kamikaze“ dróna, sem geta hangið í loftinu yfir skotmarki sínu í nokkurn tíma áður en þeir þeytast til jarðar og springa. Erlent 17.10.2022 06:30
Segir fjandinn hafi það og heldur áfram að greiða fyrir internetið Auðjöfurinn Elon Musk hefur ákveðið að halda áfram að greiða fyrir internet Úkraínumanna. Musk bað varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna að greiða fyrir netþjónustuna í vikunni. Erlent 16.10.2022 16:22
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín segist ekki sjá eftir neinu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir sextán þúsund menn sem skikkaðir voru til herþjónustu hafa verið senda á vígstöðvarnar í Úkraínu. Gagnrýni í garð herkvaðningarinnar hefur aukist í Rússlandi og fregnir hafa borist af dauðsföllum meðal kvaðmanna en Pútín segist ekki sjá eftir neinu í tengslum við innrásina í Úkraínu. Erlent 14.10.2022 16:20
Yrði ekki svarað með kjarnorkuvopnum en sveitir Rússa þurrkaðar út Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur verið harðlega gagrýndur fyrir að lýsa því yfir að Frakkar myndu ekki svara kjarnorkuárás á Úkraínu með kjarnorkuvopnum. Erlent 14.10.2022 07:16
Vígamenn tengdir al-Qaeda tóku Afrin í Sýrlandi Vígamenn öfgahópsins Hayat Tahrir al-Sham, eða HTS, hafa tekið yfir stjórn borgarinnar Afrin í samnefndu héraði í Sýrlandi. HTS er afsprengi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Sýrlandi en vígamennirnir náðu tökum á borginni eftir harða bardaga við meðlimi öfgahópsins Al-Jabha Al-Shamiyyah. Erlent 13.10.2022 14:51
Endalaus hryllingur Úkraínska þjóðin berst af mikilli hörku, dugnaði og þrautseigju fyrir lífi sínu og frelsi sínu. Hræðilegar árásir Rússa á Úkraínu ekki bara á hernaðarmannvirki heldur á almennaborgara, verslunarmiðstöðvar, sjúkrahús og leikvelli sýnir meiri grimmd og hrylling en hægt væri að ímynda sér. Skoðun 13.10.2022 11:00
Sprengjum rignir enn yfir borgir Úkraínu Ráðamenn í Kænugarði segja að það muni taka nokkrar vikur að gera að fullu við orkuver og dreifikerfi Úkraínu eftir umfangsmiklar árásir á innviði landsins í vikunni. Um þriðjungur rafmagnsinnviða landsins er sagður hafa orðið fyrir skemmdum og rafmagnsleysi er víða. Erlent 13.10.2022 10:05
143 af 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna fordæma „innlimun“ Rússa 143 af 193 ríkjum sem eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum greiddu atkvæði með því í gær að fordæma ólögmæta innlimun Rússa á fjórum héruðum í Úkraínu. Erlent 13.10.2022 07:11
Úkraína fær háþróuð loftvarnarkerfi frá bandamönnum Bandamenn Úkraínu í NATO munu senda úkraínska hernum aukinn og háþróaðan herbúnað til að efla loftvarnarbúnað hersins. Ástæðan er aukning í eldflaugaárásum Rússa á skotmörk ú Úkraínu. Erlent 12.10.2022 23:30
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Þagga niður í óánægjuröddum með árásum á óbreytta borgara Litlar breytingar hafa orðið á víglínunum í Úkraínu síðustu daga, eða síðan Úkraínumenn náðu töluverðum og hröðum árangri í bæði suðurhluta og austurhluta landsins. Harðir bardagar eru sagðir hafa átt sér stað víðsvegar í landinu þar sem Rússar eru sagðir hafa gert gagnárás gegn Úkraínumönnum í austri og Úkraínumenn eru sagðir hafa frelsað nokkur þorp í Kherson-héraði. Erlent 12.10.2022 11:36
Segir Pútín sýna rökhugsun en hafa stórkostlega misreiknað stöðuna í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín Rússlandsforseta sýna rökhugsun en hann hafi hins vegar stórkostlega misreiknað þegar hann ákvað að ráðast inn í Úkraínu. Þá segir forsetinn hótanir Rússa um notkun kjarnorkuvopna mögulega geta leitt til hörmulegra mistaka. Erlent 12.10.2022 07:12