Náttúruhamfarir
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 22 ›
Dauðadæmdur jökull sem hverfur á næstu tveimur áratugum Torfajökull er einn þriggja jökla á landinu sem mun að öllum líkindum hverfa á næstu tveimur áratugum. Jöklafræðingur segir ekkert geta bjargað jöklinum úr þessu. Ljósmyndarinn RAX flaug nýverið yfir jökulinn og sýnir myndefnið vel stöðuna í dag. Innlent 2.10.2023 19:20
Íslendingur lýsir ástandinu í New York sem súrrealísku Neyðarástandi var lýst yfir í New York-borg og víðar í gær vegna mestu rigninga á svæðinu í sjötíu ár. Íslendingur sem búsettur hefur verið í borginni í áratug segir ástandið súrrealískt. Götur breyttust í straumþungar ár og samgöngur lömuðust. Erlent 30.9.2023 20:52
Neyðarástandi lýst yfir í New York vegna skyndiflóða Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í New York borg vegna skyndiflóða sem hafa orðið í kjölfar mikilla rigninga í ríkinu. Erlent 29.9.2023 22:43
Snjóflóðavarnargarðar verða útivistarparadís Því er spáð að nýir snjóflóðavarnargarðar á Patreksfirði verði útivistarparadís og aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Svo stoltir eru heimamenn af mannvirkinu að þeir buðu forseta Íslands að skoða veglegan útsýnispall sem búið er að smíða ofan á einum garðinum. Innlent 24.9.2023 06:17
Engar tilkynningar um skriðuföll en áfram mikil rigning Engar fréttir hafa borist af skriðuföllum á Seyðisfirði þar sem hættustig Almannavarna er í gildi. Þó er vel fylgst með gangi mála þar sem áfram er búist við mikilli rigningu. Rýmingum verður ekki aflétt í dag. Innlent 19.9.2023 08:44
„Maður getur rétt ímyndað sér hvernig það er að upplifa þetta aftur“ Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri hjá almannavörnum, telur óhætt að segja að það sé óvenjulegt að það þurfi að rýma hús vegna náttúruvár á Íslandi um miðjan september. Ákveðið hefur að rýma á fjórða tug húsa á Seyðisfirði vegna svakalegrar úrkomuspár. Innlent 18.9.2023 23:23
Segir það rangt að fólki hafi verið sagt að halda sig heima Íbúar í hafnarborginni Derna segjast engar viðvaranir hafa fengið áður en stormur skall á síðasta sunnudag. Allt að ellefu þúsund eru látin og þúsundir enn týnd. Embættismenn segjast hafa skipað rýmingu og varað fólk við. Erlent 16.9.2023 07:46
Leitin að sökudólgum hafin í Líbíu Fimm dögum eftir að flóð léku íbúa norðausturhluta Líbíu grátt eru lík enn að finnast á víð og dreif. Leitin að sökudólgum er hafin og Sameinuðu þjóðirnar segja að hægt hefði verið að koma í veg fyrir hamfarirnar. Erlent 14.9.2023 23:54
Óttast að allt að tuttugu þúsund hafi látið lífið í Derna Nú er óttast að átján til tuttugu þúsund manns hafi látið lífið í flóðunum í líbísku borginni Derna um helgina. Erlent 14.9.2023 07:19
Fleiri en tvö þúsund lík fundin eftir flóðin í Líbíu Björgunar- og leitarflokkar hafa fundið meira en tvö þúsund lík í rústum borgarinnar Dernu í austanverðri Líbíu. Yfirvöld óttast að tala látinna gæti náð fimm þúsund þegar uppi er staðið. Erlent 13.9.2023 08:34
Þúsundir látin eða týnd og heilt hverfi horfið í haf Um tíu þúsund eru týnd eða þúsundir látin í kjölfar hamfaraflóða í borginni Derna í Líbíu. Stormurinn Daníel gekk yfir landið á sunnudag upp ströndina frá Miðjarðarhafinu. Erlent 12.9.2023 14:56
Samhæfa leitaraðgerðir með innlendum og erlendum teymum Leitarteymi frá Bretlandi, Spáni, Sameinaða arabíska furstadæminu og Katar eru komin eða á leiðinni til Marokkó til að aðstoða við leit og björgun. Tala látinna hækkar enn og fjöldi slasaðra. Erlent 11.9.2023 09:02
Falsfréttir að Ronaldo hafi rétt fram hjálparhönd eftir harmleikinn í Marokkó Hótel í eigu knattspyrnumannsins Cristiano Ronaldo hefur ekki opnað dyr sínar fyrir þeim sem eiga í engin hús að venda lengur eftir skelfilegan jarðskjálfta í Marokkó. Fréttir þess efnis bárust í morgunsárið en hótelið hefur nú staðfest að allir sem gisti þar hafi keypt gistingu. Fótbolti 11.9.2023 08:30
Tala látinna hækkar og almenningur sefur á götum úti Meira en tvöþúsund eru látnir eftir jarðskjálfta sem reið yfir í Marokkó á föstudagskvöld. Erlent 10.9.2023 07:40
Senda tíu milljónir króna til Marokkó vegna skjálftans SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda að lágmarki tíu milljónir króna til neyðaraðstoðar í Marokkó. Söfnun hefur verið hrundið af stað. Erlent 9.9.2023 19:01
Hvetja Íslendinga til að láta vita af sér Íslendingar í Marokkó eru hvattir til að láta vita af sér á samfélagsmiðlum eða með því að hafa samband við aðstandendur séu þeir öryggir. Innlent 9.9.2023 09:05
Tíu látnir í flóðunum í Grikklandi og fleiri saknað Tala látinna í flóðunum í Grikklandi hækkar enn. Nú eru tíu taldir af og fjögurra til viðbótar er saknað. Björgunarlið flytur enn hundruð íbúa þorpa á hamfararsvæðinu burt með þyrlum og bátum. Erlent 8.9.2023 15:48
Mesta rigning í Hong Kong í 140 ár Gríðarlegar rigningar í Hong Kong og í fleiri borgum í suðurhluta Kína hafa framkallað mikil flóð víða en rigningin er sú mesta sem riðið hefur yfir svæðið í manna minnum. Erlent 8.9.2023 08:13
Tveir til viðbótar látnir í flóðunum í Grikklandi Þrír eru látnir og fjögurra er enn saknað eftir að gríðarmikil flóð urðu víðsvegar um Grikkland vegna óveðursins Daniel sem nú ríður yfir landið. Erlent 6.9.2023 19:49
Flóð á eftir eldum í Grikklandi Eftir langvarandi þurrka og umfangsmikla gróður- og skógarelda er rigningin nú að leika Grikki grátt. Minnst einn er látinn vegna mikilla rigninga og hefur flætt víða um vestanvert og mitt Grikkland. Þá er eins manns saknað en hann mun hafa orðið fyrir skyndiflóði. Erlent 5.9.2023 10:10
Mannskæðir vatnavextir í úrhelli á Spáni Að minnsta kostir tveir eru látnir í miklum vatnavöxtum á Spáni. Fólki hefur verið bjargað af húsþökum og vegir og járnbrautarlínur hafa lokast vegna úrhellisrigningarinnar sem byrjaði að falla í gær. Erlent 4.9.2023 12:24
„Það hefði mátt koma í veg fyrir þetta“ Claudia Gockel býr á Nýlendu í Suðurnesjabæ, ekki langt fyrir utan Sandgerði. Mikill sjógangur var á svæðinu í gær og flæddi yfir sjóvarnargarða. Fór sem svo að sjór umlykti hús Claudiu og þurfti hún að vaða upp að hnjám til að komast út. Innlent 3.9.2023 21:07
Íslenskir skátaforingjar fá hjálp eftir gríðarlega erfiða Kóreuferð Bandalag íslenskra skáta vinnur nú að því að veita fararstjórum og foringjum sem fóru á Alheimsmót skáta í Suður-Kóreu fyrr í þessum mánuði, ásamt stórum hópi ungra skáta, aðstoð og hjálp. Þeir voru settir í mjög erfiðar aðstæður, en skipulag mótsins var ekki með besta móti, og þar að auki var veðrið í Kóreu mjög erfitt viðureignar. Innlent 31.8.2023 07:00
Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna. Erlent 30.8.2023 12:07
Hugsanlegt að Skaftárhlaup hafi náð hámarki Sérfræðingar hjá Veðurstofu Íslands funda í dag og kanna hvort flóðatoppnum í Skaftárhlaupi sem hófst í gær sé náð eða hvort hann geti farið hækkandi. Að sögn bónda á svæðinu er vatnsmagnið minna nú en oft áður og heimafólk ekki uggandi yfir stöðunni eins og er. Innlent 30.8.2023 11:16
Lokanir á fjallvegum vegna hlaup í Skaftá Lögreglan á Suðurlandi vekur athygli á lokunum á fjallvegum vegna yfirstandandi hlaups í Skaftá. Í tilkynningu segir að staðan sé reglulega metin með sérfræðingum Veðurstofu Íslands og Almannavörnum. Innlent 30.8.2023 10:40
Fellibylurinn Idalia ógnar íbúum Flórída Íbúar Flórída í Bandaríkjunum búa sig nú undir að fellibylurinn Idalia nái að strönd ríkisins. Erlent 30.8.2023 07:30
Lýsa yfir óvissustigi vegna Skaftárhlaupsins Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna Skaftárhlaups. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Innlent 29.8.2023 10:55
Skáftárhlaup er hafið Skaftárhlaup er hafið. Þetta staðfestir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands. Rennsli og leiðni hefur aukist í ánni frá því í nótt í Skaftá við Sveinstind og tilkynningar um brennisteinslykt hafa borist frá landvörðum í Hólaskjóli. Innlent 29.8.2023 09:02
Nær áttatíu handteknir fyrir íkveikjur tengdar gróðureldunum Grísk yfirvöld hafa handtekið 79 manns vegna tilrauna til íkveikja sem tengjast gróðureldunum sem nú loga víða um landið. Eldarnir sem loga nærri hafnarborginni Alexandroupolis eru þeir stærstu sem hafa orðið innan Evrópusambandsins. Erlent 26.8.2023 10:33