
Ítalski boltinn

Íslendingarnir í Lecce fara saman í skóla til að læra ítölskuna
Lecce er nýjasta Íslendinganýlendan í fótboltanum en þar spila tveir leikmenn íslenska A-landsliðsins, þeir Þórir Jóhann Helgason og Brynjar Ingi Bjarnason.

Mæta til leiks í úrslit Þjóðadeildarinnar ósigraðir í 37 leikjum í röð
Ítalir gætu unnið sinn annan titil á þessu ári þegar úrslitaleikir Þjóðadeildarinnar fara fram í vikunni. Ítalska liðið er á heimavelli og hefur ekki tapað leik í þrjú ár.

Emil leikur aftur í Verónaborg
Emil Hallfreðsson mun spila í ítölsku C-deildinni í fóbolta í vetur með liði Virtus Verona. Þessi 37 ára gamli leikmaður skrifaði undir samning sem gildir út júní á næsta ári.

Bikar í boði fyrir fjögur evrópsk landslið í þessari viku
Þú vinnur ekkert í október hefur verið hent fram nokkrum sinnum í gegnum tíðina. Þetta árið er það ekki alveg rétt því fjögur af bestu landsliðum heims keppa um bikar í þessum landsleikjaglugga.

Milan ekki byrjað jafn vel síðan liðið vann titilinn
AC Milan vann 3-2 útisigur á Atalanta í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld. Liðið hefur ekki byrjað tímabil jafn vel síðan 2003-2004 en þá endaði það sem Ítalíumeistari.

Guðný spilaði allan leikin er tíu leikmenn AC Milan héldu út gegn Napoli
Guðný Árnadóttir var í byrjunarliði AC Milan sem heimsótti Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en Guðný snéri aftur til Milan í sumar eftir lánsdvöl hjá Napoli. AC Milan lék allan seinni hálfleikinn manni færri, en unnu að lokum góðan 1-0 sigur.

Patrik sá rautt í sigri | Mikael Egill kom inn og Spal bjargaði stigi
Það gekk mikið á hjá íslenskum knattspyrnumönnum í Evrópu í dag. Patrik Sigurður Gunnarsson sá rautt í Noregi á meðan Mikael Egill Ellertsson kom inn af bekknum er Spal gerði 2-2 jafntefli við Gianluigi Buffon og félaga í Parma í ítölsku B-deildinni.

Ítalíumeistarar Inter eru líka meistarar í taprekstri
Þeir sem hneyksluðust á miklum taprekstri Juventus á síðasta fjárhagsári þurftu ekki að bíða lengi eftir að annað ítalska félag gerði enn betur eða verr eins og væri réttara að segja.

Mourinho: Dómarinn eyðilagði leikinn
Jose Mourinho, þjálfari ítalska liðsins Roma var mjög ósáttur eftir tapið gegn Lazio fyrr í dag. Þjálfarinn, sem er þekktur fyrir að hafa munninn fyrir neðan nefið, lét dómara leiksins heyra það í viðtali eftir leik.

Lazio vann Roma í Rómarborgarrimmu
Lazio vann 3-2 sigur á erkifjendunum í Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, Serie A, í dag í frábærum leik.

Tap hjá Bologna í fyrsta leik Jóns Axels
Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson var í byrjunarliði Foritudo Bologna sem tapaði naumlega fyrir Reggio Emilia í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta, Serie A.

Juventus vann annan leikinn í röð
Eftir afar erfiða byrjun á tímabilinu er Juventus nú búið að vinna tvo leiki í röð. Liðið vann mikilvægan 3-2 sigur þegar að Sampdoria mætti í heimsókn.

AC Milan á toppinn | Meistararnir töpuðu stigum
AC Milan lyfti sér að minnsta kosti tímabundið í efsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri gegn Spezia í dag. Á sama tíma gerðu ítölsku meistararnir í Inter 2-2 jafntefli gegn Atalanta.

Tammy Abraham skaut Roma aftur á sigurbraut
Roma vann 1-0 sigur þegar að liðið tók á móti Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lærisveinar José Mourinho eru nú með fjóra sigra í fyrstu fimm leikjunum eftir tap í síðustu umferð.

Milan jafnt Inter á toppnum eftir sigur á Venezia
AC Milan vann 2-0 sigur á Venezia í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld. Bjarki Steinn Bjarkason sat allan tímann á varamannabekk Venezia.

Dramatísk endurkoma er Juventus vann loks leik
Ítalska stórliðið Juventus er loks komið á blað í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, eftir 3-2 útisigur á Spezia.

Þjálfari Juventus segir að liðið sé á leið í sex stiga fallbaráttuslag
Juventus heimsækir Spezia í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld. Þjálfari liðsins, Massimilian Allegri, segir að leikurinn sé sex stiga fallbaráttuslagur.

Ítölsku meistararnir enn taplausir
Ítölsku meistararnir í Inter unnu 3-1 útisigur gegn Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Heimamenn í Fiorentina leiddu í hálfleik, en góður seinni hálfleikur skilaði meisturunum sigri.

Napoli með fullt hús stiga eftir stórsigur
Napoli vann 4-0 sigur á Udinese í Serie A, ítösku úrvalsdeildinni í fótbolta, í kvöld. Liðið er því með fullt hús stiga á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru búnar.

Juventus í fallsæti og fær alltaf á sig mark
Það er ýmislegt sögulegt að eiga sér stað hjá ítalska stórveldinu Juventus. Allt á mjög slæman hátt.

Juventus enn í leit að fyrsta sigrinum eftir jafntefli gegn AC Milan
Juventus og AC Milan gerðu 1-1 jafntefli í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Juventus hefur ekki enn unnið leik þegar fjórar umferðir eru búnar af deildinni.

Meistararnir á toppinn eftir stórsigur
Ítalíumeistarar Inter Milan gjörsamlega pökkuðu Bologna saman í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, er liðin mættust á Giuseppe Meazza-vellinum. Lokatölur 6-0 og Inter komið tímabundið á topp deildarinnar.

Juventus tapaði meira en þrjátíu milljörðum króna á síðasta tímabili
Juventus opinberaði rekstrartölur félagsins í dag og það er ekki fallegur lestur fyrir Juve fólk. Juventus tapaði næstum því 210 milljónum evra á síðasta rekstrarári sem eru um 31,8 milljarðar íslenskra króna.

Zlatan skorað á 24 tímabilum í röð: „Hann verður ekki gamall“
Zlatan Ibrahimovic skoraði í fyrsta leik sínum fyrir AC Milan eftir hnémeiðsli. Hann hefur nú skorað á 24 tímabilum í röð.

Zlatan skoraði í endurkomunni og Roma vann dramatískan sigur | Bæði lið með fullt hús
Svínn Zlatan Ibrahimović skoraði í endurkomu sinni fyrir AC Milan er liðið vann Lazio 2-0 í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þá gerðu lærisveinar José Mourinho hjá Roma 1-1 jafntefli við Sassuolo.

Martinez skoraði er Inter tapaði stigum
Sampdoria og Ítalíumeistarar Inter frá Milanó skildu jöfn, 2-2, í þriðju umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, Serie A.

Juventus áfram í vandræðum
Napoli gerði sér lítið fyrir og vann Juventus á heimavelli í dag. Napoli hefur byrjað mjög vel í deildinni og voru með fullt hús stiga fyrir leikinn. Stórlið Juventus hins vegar í vandræðum og einungis með eitt stig fyrir leikinn.

Ribéry til liðs við nýliða Salernitana
Hinn 38 ára Franck Ribéry hefur skrifað undir eins árs samning við nýliða ítölsku úrvalsdeildarinnar Salernitana.

Juventus-menn æfir eftir sóttvarnabrot McKennies og tilbúnir að selja hann
Brot Westons McKennie á sóttvarnareglum bandaríska landsliðsins gæti dregið enn meiri dilk á eftir sér en Juventus íhugar nú að selja hann.

Mourinho við Xhaka: Farðu í bólusetningu
Granit Xhaka, leikmaður Arsenal og svissneska karlalandsliðsins í fótbolta, greindist með kórónuveiruna í vikunni. Knattspyrnusamband Sviss greindi frá því að hann væri óbólusettur en José Mourinho, þjálfari Roma, sem reyndi að fá Xhaka í sínar raðir í sumar hefur hvatt hann til að láta sprauta sig.