Meistaradeildin
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 274 ›
Strákarnir af Skaganum horfðu í augun á mulningsvél Man City og bognuðu hvorki né brotnuðu Það var einfaldlega skítkalt þegar blaðamaður mætti á Parken, heimavöll FC Kaupmannahafnar, fyrir leik FCK og Manchester City í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hvort það hafi haft áhrif á suðræna og seiðandi leikmenn gestaliðsins skal ósagt látið en leiknum lauk með markalausu jafntefli þar sem tveir ungir drengir frá Akranesi komu við sögu hjá heimaliðinu. Fótbolti 11.10.2022 23:30
„Allur Parken var að spila þennan leik“ Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson komu báði við sögu í liði FC Kaupmannahafnar er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Englandsmeisturum Manchester City í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 11.10.2022 22:30
Chelsea á topp E-riðils eftir sigur gegn tíu leikmönnum AC Milan Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea vann öruggan 0-2 útisigur er liðið heimsótti Ítalíumeistara AC Milan í fjórðu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Heimamenn þurftu að spila stærstan hluta leiksins manni færri og sigur gestanna því í raun aldrei í hættu. Fótbolti 11.10.2022 18:30
Rüdiger hetja Evrópumeistaranna | Benfica tók stig af PSG Antonio Rüdiger reyndist hetja Evrópumeistara Real Madrid er hann tryggði liðinu 1-1 jafntefli í heimsókn Madridinga til úkraínska liðsins Shakhtar Donetsk til Varsjá í Póllandi í fjórðu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þá gerðu franska stórliðið PSG og Benfica 1-1 jafntefli í París á sama tíma. Fótbolti 11.10.2022 18:30
Íslendingaliðið tók stig gegn Englandsmeisturunum | Juventus tapaði í Ísrael Ísak Bergmann Jóhannesson, Hákon Arnar Haraldsson og félagar í danska meistaraliðinu FC Kaupmannahöfn sóttu sitt annað stig í G-riðli Meistaradeildar Evrópu þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn ógnarsterku liði Manchester City í kvöld. Fótbolti 11.10.2022 16:16
Gummi Ben og Baldur í miðju Meistaradeildaræði í Glasgow Glasgow í Skotlandi iðar af lífi þessa dagana enda fara tveir leikir fram í borginni í Meistaradeild Evrópu á jafn mörgum dögum. Okkar menn, Guðmundur Benediktsson og Baldur Sigurðsson, eru í Glasgow og fylgjast þar með gangi mála. Fótbolti 11.10.2022 13:01
Lagerbäck minnir fólk á að góðu gen Haaland komi ekki síst frá mömmu hans Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, þekkir vel til Norðmannsins Erling Braut Haaland eftir að hafa þjálfað hann í norska landsliðinu. Enski boltinn 6.10.2022 08:01
Messi skoraði í jafntefli gegn Benfica | Juventus sótti sín fyrstu stig í Meistaradeildinni PSG og Benfica deila toppsæti H-riðls eftir 1-1 jafntefli á meðan Juventus tókst loksins að koma sér á blað eftir 3-1 sigur á Maccabi Haifa. Fótbolti 5.10.2022 22:56
Chelsea sigraði slakt lið AC Milan Chelsea vann þægilegan 3-0 sigur á AC Milan í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu en Milan var alls án níu leikmanna vegna meiðsla í kvöld. Fótbolti 5.10.2022 18:31
Ísak og Hákon réðu ekki við Englandsmeistarana Manchester City vann auðveldan 5-0 sigur gegn FC Kaupmannahöfn í G-riðli Meistaradeild Evrópu í kvöld. Sigur City var aldrei í hættu. Fótbolti 5.10.2022 18:31
Leipzig fór auðveldlega í gegnum Celtic | Salzburg á topp E-riðils Red Bull liðin Leipzig og Salzburg unnu bæði sigra í sínum leikjum í fyrstu viðureignum Meistaradeildar Evrópi í dag. Fótbolti 5.10.2022 18:56
Gaf mark og fékk svo glórulaust rautt spjald: „Þetta er hræðilegt“ Antonio Adán, markvörður Sporting frá Lissabon, hefur átt betri daga en í gær. Hann gaf Marseille mark og fékk svo beint rautt spjald fyrir að handleika knöttinn utan teigs í 4-1 tapi Sporting í Frakklandi í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 5.10.2022 13:30
„Ég er hneykslaður“ Þjálfara Barcelona, Xavi, var heitt í hamsi eftir 1-0 tapið gegn Inter í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld og taldi óréttláta dómgæslu hafa orðið sínu liði að falli. Fótbolti 5.10.2022 07:31
„Það eina sem skiptir máli er að vinna og hjálpa liðinu“ Trent Alexander-Arnold, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, gat leyft sér að brosa eftir 2-0 sigur liðsins gegn Rangers í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 4.10.2022 22:00
Napoli fór illa með Ajax | Club Brugge enn með fullt hús stiga Þriðja umferð Meistaradeildar Evrópu fór hófst í kvöld með átta leikjum. Í A-riðli vann Napoli afar sannfærandi 1-6 sigur gegn Ajax og í B-riðli er belgíska liðið Club Brugge enn með fullt hús stiga eftir 2-0 sigur gegn Atlético Madrid. Fótbolti 4.10.2022 21:19
Inter hafði betur í stórleik dauðariðilsins Inter vann afar mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Barcelona í þriðju umferð C-riðils Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 4.10.2022 18:48
Öruggur sigur Liverpool gegn Rangers Liverpool vann öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Rangers í A-riðli Meistaraeildar Evrópu í kvöld. Sigurinn þýðir að Liverpool heldur í við topplið Napoli sem valtaði yfir Ajax á sama tíma. Fótbolti 4.10.2022 18:44
Bayern valtaði yfir Viktoria Plzen og Marseille sýndi tíu mönnum Sporting enga miskunn Tveimur leikjum í þriðju umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er nú lokið þar sem Þýskalandsmeistara Bayern München unnu öruggan 5-0 sigur gegn Viktoria Plzen í C-riðli og í D-riðli vann Marseille 4-1 sigur gegn Sporting. Fótbolti 4.10.2022 19:05
Þegar Eyjafjallajökull og Mourinho stöðvuðu draumalið Guardiolas Inter og Barcelona eigast við í stórleik dagsins í Meistaradeild Evrópu. Inter hefur aðeins einu sinni unnið Barcelona í tíu leikjum í Meistaradeildinni og sá sigur var eftirminnilegur. Fótbolti 4.10.2022 15:30
Starfið undir í stórleiknum í kvöld? Stórleikur er á dagskrá í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Inter tekur á móti Barcelona á Giuseppe Meazza leikvanginum í Mílanó en leikurinn gæti haft mikið að segja um hvort liðanna fari í 16-liða úrslit og einnig um framtíð Simone Inzaghi hjá ítalska liðinu. Fótbolti 4.10.2022 13:01
Fjölbreytnin fer illa með íslenskan fótbolta Um leið og það ætti kannski að vera gleðiefni að kvennalið Stjörnunnar og karlalið KA nái þeim tímamótum að komast í Evrópukeppni í fótbolta þá má segja að það sé alls ekki hagur íslensks fótbolta. Það er vegna fyrirkomulags UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, sem þjónar hag stærstu knattspyrnuvelda álfunnar. Íslenski boltinn 4.10.2022 08:00
Klopp um Núñez: Liðið er ekki að hjálpa honum Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kveðst hafa litlar áhyggjur af úrúgvæska framherjanum Darwin Núñez þrátt fyrir brösuga byrjun hans í Bítlaborginni. Enski boltinn 3.10.2022 15:04
Stuðningsmenn Liverpool ætla í hart gegn UEFA Meira en 1.700 stuðningsmenn Liverpool, sem urðu fyrir skaða vegna þeirra ringulreiðar sem skapaðist á úrslitaleik Liverpool og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í París á síðasta tímabili, ætla að ákæra UEFA vegna skipulagsleysis í kringum leikinn. Fótbolti 24.9.2022 11:55
Upplausn eftir tapið fyrir Víkingi: Þjálfarinn entist í tíu daga Levadia Tallinn, sem féll úr keppni fyrir Víkingi í Meistaradeild Evrópu fyrr í sumar, hefur rekið nýjan þjálfara sinn eftir aðeins einn leik. Félagið hefur farið í gegnum nokkra þjálfara frá tapinu í sumar. Fótbolti 23.9.2022 10:31
Baulað á Hakimi í Ísrael Achraf Hakimi, leikmaður París Saint-Germain, er greinilega ekki vinsæll í Ísrael. Ástæðan er sú að Hakimi, sem er frá Marokkó, hefur opinberlega stigið fram og stutt að Palestína verði frjálst ríki. Fótbolti 15.9.2022 23:30
Danir verðlaunuðu ferðalanga með fríum bjór Íslendingaliðin FC Kaupmannahöfn og Silkeborg eru ansi góðir gestgjafar að mati spænskra og enskra stuðningsmanna sem mætt hafa til Danmerkur vegna Evrópuleikja í fótbolta í vikunni. Fótbolti 15.9.2022 14:00
Utan vallar: Íslendingar áberandi er Meistaradeildin mætti til Köben Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar er liðið tók á móti Sevilla í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á heimavelli sínum Parken. Hákon Arnar Haraldsson og Orri Steinn Óskarsson hófu leik á bekknum á meðan fjöldi Íslendinga var í stúkunni, þar á meðal einn í fjölmiðlastúkunni. Fótbolti 15.9.2022 12:01
Mörkin í Meistaradeildinni: Sjáðu ótrúlegt mark Haalands Erling Haaland stal senunni í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gær þegar níu leikir fóru fram. Mörk og helstu atvik má nú sjá á Vísi. Fótbolti 15.9.2022 09:31
Ísak Bergmann: „Veit að Man City er annað skrímsli“ Ísak Bergmann Jóhannesson varð í gærkvöld sextándi Íslendingurinn til að spila í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Hann lék 87 mínútur í markalausu jafntefli FC Kaupmannahafnar og Sevilla en leikurinn fór fram á Parken í Kaupmannahöfn. Vísir náði tali af Ísaki Bergmanni eftir leik. Fótbolti 15.9.2022 09:00
Börnin réðu ekki við sig og föðmuðu Messi Börnin sem fengu að leiða leikmenn inn á völlinn í leik Maccabi Haifa og PSG í Ísrael í gærkvöld sýndu kostuleg viðbrögð þegar þau sáu sjálfan Lionel Messi. Fótbolti 15.9.2022 07:30
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn