Skotinn af lögreglu á Egilsstöðum
Fær ekki að áfrýja dómi vegna skotárásarinnar á Egilsstöðum Hæstiréttur telur ekki ástæðu til að veita Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni leyfi til að áfrýja átta ára fangelsisdómi fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst árið 2021. Innlent 14.3.2023 14:03
Átta ára fangelsi yfir Árnmari endanleg niðurstaða Landsréttur staðfesti í dag átta ára fangelsisdóm yfir Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst í fyrra. Innlent 16.12.2022 14:33
Átta ára fangelsi fyrir skotárás á Egilsstöðum Árnmar Jóhannes Guðmundsson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi, meðal annars fyrir tilraun til manndráps, eftir skotárás á Egilsstöðum í ágúst í fyrra. Hann var skotinn af lögregluþjóni eftir að hafa farið vopnaður skammbyssu og haglabyssu að húsi barnsföður kærustu sinnar, þar sem hann beindi byssu að tveimur sonum hans. Innlent 20.4.2022 16:37
Fannst skrýtið að sjá lögreglu yfirheyra mann í blóði sínu Rúnar Snær Reynisson, fréttamaður Ríkisútvarpsins á Austfjörðum, segir að honum hafi fundist skrýtið að fylgjast með lögreglu yfirheyra mann í blóði sínu á Egilsstöðum í ágúst. Rúnar er meðal vitna í máli héraðssaksóknara gegn Árnmari Jóhanni Guðmundssyni sem sætir ákæru fyrir tvær tilraunir til manndráps. Innlent 25.2.2022 13:34
Ágreiningur um fjölda skota og staðsetningu lögreglumanns Lögreglumenn sem tóku þátt í aðgerðum vegna skotárásar á Egilsstöðum í ágúst báru vitni fyrir Héraðsdómi Austurlands í gær. Lögreglumaðurinn sem skaut manninn taldi sig hafa skotið mun sjaldnar úr byssu sinni en kom í ljós í vettvangsrannsókn. Innlent 25.2.2022 06:01
Sagðist hafa ætlað að láta lögreglu binda enda á líf sitt Árnmar Jóhannes Guðmundsson, sem skotinn var af lögreglu eftir að hann skaut af byssu á íbúðarhús á Egilsstöðum í ágúst, neitar því að vera sekur um tilraun til manndráps er hann hleypti af byssu í átt að lögreglumönnum á vettvangi. Í dómsal í dag sagðist Árnmar hafa, eftir að það hafði runnið upp fyrir honum hvað hann hafði gert, ætlað að láta lögreglu binda enda á líf sitt. Hann lýsti yfir mikilli eftirsjá vegna málsins. Innlent 24.2.2022 14:47
Ekkert benti til refsiverðrar háttsemi lögreglu Héraðssaksóknari hefur hætt rannsókn á viðbrögðum lögreglu við skotárás í Dalseli á Egilsstöðum þann 26. ágúst í fyrra. Saksóknari segir ekkert hafa komið fram sem gefið hafi til kynna refsiverða háttsemi af hálfu lögreglu. Innlent 10.12.2021 11:31
Byssumaðurinn meðal annars ákærður fyrir tilraun til manndráps Ákæra á hendur manninum, sem var skotinn af lögreglunni á Egilsstöðum í ágúst eftir að hann skaut af byssu á íbúðarhús í Dalseli, hefur verið birt. Maðurinn er meðal annars ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, eignaspjöll, vopnalagabrot og brot í nánu sambandi. Innlent 29.11.2021 11:02
Byssumaðurinn á Egilsstöðum ákærður Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni, sem skaut á hús í Dalseli á Egilsstöðum í ágúst. Maðurinn var skotinn af lögreglu og fluttur á Landspítala þar sem hann lá á gjörgæslu í nokkurn tíma. Hann var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 22.11.2021 11:03
Áfram í gæsluvarðhaldi og rannsókn langt komin Rannsókn á meintum brotum karlmanns sem lögreglumenn skutu á Egilsstöðum í ágúst er langt á veg komin. Maðurinn var úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald í síðustu viku. Innlent 11.10.2021 10:09
Undraverður bati þrátt fyrir gríðarlegan blóðmissi og lífshættulega áverka Bati mannsins sem var skotinn af lögreglu á Egilsstöðum í síðasta mánuði hefur verið undraverður, að sögn Tómasar Guðbjartssonar hjartaskurðlæknis á Landspítalanum. Hann segir fæsta lifa svo alvarlega áverka af enda hafi hann misst því sem jafngildi nær öllu blóði mannslíkamans. Skotið fór í hægra lunga mannsins, í gegnum brjóstholið og hafnaði á vegg fyrir aftan hann. Innlent 8.9.2021 19:02
Skotmaðurinn úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald Maðurinn sem skotinn var af lögreglu, og grunaður er um skotárás, á Egilsstöðum fimmtudaginn 26. ágúst hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Gæsluvarðhaldið rennur út laugardaginn 11. september. Innlent 30.8.2021 10:35
Ekkert sem bendir til að verklagi lögreglu hafi ekki verið fylgt Ekkert bendir á þessu stigi til þess að verklagi lögreglu í atburðunum sem áttu sér stað í Dalseli á Egilsstöðum aðfararnótt föstudagsins hafi ekki verið fylgt. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi sem hafi rýnt í atburðina innanhúss. Þá segir að lögreglumenn sem að aðgerðinni komu hafi fengið sálræna aðstoð. Innlent 30.8.2021 07:52
Skotmaðurinn kominn af gjörgæslu Maðurinn sem varð fyrir byssukúlu í skotbardaga við lögreglu á Egilsstöðum á fimmtudagskvöld er kominn af gjörgæslu og er á batavegi. Innlent 29.8.2021 17:50
Hvetur íbúa til að standa saman eftir skotárásina Sveitarstjóri Múlaþings hvetur íbúa á Egilsstöðum til þess að standa við bakið hver á öðrum eftir skotárás sem varð í bænum í fyrradag og er þakklátur lögreglu fyrir góð viðbrögð. Nokkrar fjölskyldur hafa leitað sér áfallahjálpar eftir árásina. Innlent 28.8.2021 12:34
Bæjarbúar skelkaðir og þeim boðin áfallahjálp Íbúar á Egilsstöðum eru slegnir eftir að lögregla skaut mann þar í gærkvöldi. Líðan skotmannsins er stöðug en hann gekkst undir aðgerð í nótt eftir að hafa orðið fyrir skoti í kviðinn. Innlent 27.8.2021 21:06
Líðan skotmannsins stöðug eftir aðgerð Karlmaður á fimmtugsaldri sem skotinn var af lögreglu á Egilsstöðum í gærkvöldi liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. Líðan hans er stöðug en hann gekkst undir aðgerð í nótt eftir að hafa verið skotinn í kviðinn. Innlent 27.8.2021 17:49
Hrósar lögreglu í hástert fyrir viðbrögð í gærkvöldi Íbúi í Dalseli á Egilsstöðum segir lögreglu á Austfjörðum hafa staðið sig afar faglega á vettvangi þegar vopnaður karlmaður á fimmtugsaldri var skotinn í gærkvöldi. Hann segir byssumanninn hafa dritað kúlum og haglaskotum um allt. Innlent 27.8.2021 16:24
Mætti heim til barnsföður kærustu sinnar Karlmaður á fimmtugsaldri var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík frá Egilsstöðum í gær eftir að lögregla skaut hann við Dalsel í útjaðri bæjarins í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætlaði hann að eiga samskipti við barnsföður kærustu sinnar sem býr í götunni og mætti þangað vopnaður. Innlent 27.8.2021 12:51
Opna áfallamiðstöð eftir atburði gærkvöldsins Rauði Krossinn mun opna áfallamiðstöð í Egilstaðaskóla vegna atviks sem þar kom upp í gærkvöldi, þegar lögregla skaut vopnaðan karlmann á Egilsstöðum. Innlent 27.8.2021 12:21
Nýnemavígsla í skóginum þegar skotum var hleypt af í Dalseli Á sama tíma og skotum var hleypt af á Egilsstöðum í gær voru nýnemar við Menntaskólann á Egilsstöðum staddir á nýnemavígslu í Selskógi skammt frá. Sumir þeirra töldu sig heyra þegar skotum var hleypt af. Innlent 27.8.2021 12:10
Íbúi í húsi sem skotið var á: „Maður á ekki von á villta vestrinu hérna í ysta útverfi Egilsstaða“ „Húsið er allt sundurskotið. Það eru þrír gluggar hérna í húsinu sundurskotnir. Maður á ekki von á villta vestrinu hérna í ysta úthverfi Egilsstaða. Kannski í Reykjavík, en ekki hér.“ Innlent 27.8.2021 08:48
Maður fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir að hafa verið skotinn af lögreglu Maður var fluttur frá Egilsstöðum til Reyjavíkur í nótt eftir að hafa verið skotinn af lögreglu. Hann hafði áður skotið að lögreglu og neitað að leggja frá sér vopn sitt. Innlent 27.8.2021 06:17
Lögreglan skaut mann vopnaðan byssu á Egilsstöðum í kvöld Lögreglan á Egilsstöðum skaut mann sem vopnaður var byssu á ellefta tímanum í kvöld. Lögreglan var kölluð út að Dalseli á Egilsstöðum um klukkan hálf ellefu eftir að skothvellir heyrðust í götunni. Innlent 26.8.2021 23:21