Landslið kvenna í fótbolta

Stelpurnar geta komið Íslandi á HM í Kólumbíu í dag
Íslenska tuttugu ára landslið kvenna í fótbolta er einum sigri frá því að komast í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins næsta haust.

Sammála Þorsteini: „Til háborinnar skammar“
Barna- og menntamálaráðherra fagnar gagnrýni landsliðsþjálfara kvenna í fótbolta á hans störf. Hann segir aðstöðumál afreksíþrótta á Íslandi vera til skammar.

Umfjöllun: Wales - Ísland 1-2 | Harðneita að kveðja hóp þeirra bestu
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sendi Wales niður í B-deild Þjóðadeildar UEFA með 2-1 útisigri í Cardiff í kvöld. Sigurinn þýðir að Ísland endar í 3. sæti síns riðils í A-deild, og fer í umspil í lok febrúar um að halda sér þar.

Þorsteinn skaut á ráðherra: „Hann hefur aldrei mætt á landsleik“
Þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson var kátur eftir sigurinn góða hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta gegn Wales í kvöld. Hann skaut hins vegar um leið föstum skotum á Ásmund Einar Daðason, ráðherra íþróttamála, vegna stöðunnar á þjóðarleikvangi Íslands.

Segir Þorstein ekki rétta manninn til að stýra landsliðinu
Guðbjörg Gunnarsdóttir er markmannsþjálfari u-18 ára landsliðs Svíþjóðar sem mætir Íslandi í tveimur æfingaleikjum á dögunum. Hún gaf sig til tals við Ríkharð Óskar Guðnason fyrir komandi leiki, þegar talið barst að íslenska A-landsliðinu sagði hún erfitt að sjá leikplan þjálfarans Þorsteins Halldórssonar og viðurkenndi að hún teldi hann ekki rétta manninn til að stýra liðinu.

Þorsteinn stillir upp sama byrjunarliði og í síðasta leik
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur ákveðið að stilla upp sama byrjunarliði í kvöld og í tapleiknum á móti Þýskalandi í síðasta glugga.

Neyðarleg staða ef Ísland vinnur í kvöld
Það er mikið undir hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta í kvöld þegar það mætir Wales í hálfgerðum úrslitaleik um að forðast fall niður í B-deild Þjóðadeildar UEFA.

Íslensku stelpurnar eru skalladrottningar sænsku deildarinnar
Íslenska kvennalandsliðið á góða skallamenn og það hafa okkar landsliðskonur líka sýnt og sannað á þessu tímabili.

Töpuðu einnig 2-0 gegn Portúgal
Landslið stúlkna 15 ára og yngri mátti þola 2-0 tap gegn Portúgal í þróunarmóti UEFA sem nú fer fram í Portúgal.

Elísabet neitaði þjálfarastarfi hjá karlaliði í efstu deild í Svíþjóð
Elísabet Gunnarsdóttir veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér en hefur áhuga á þjálfunarstarfi í einhverri af stærri deildum Evrópu. Hún hafnaði boði um að gerast aðstoðarþjálfari hjá liði í efstu deild karla í Svíþjóð.

Sveindís Jane að líkindum frá út árið
Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður frá út árið hið minnsta vegna meiðsla sem hafa verið að plaga hana. Þessu greindi landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson frá á blaðamannafundi í dag.

Svona var fundurinn þegar Þorsteinn kynnti landsliðshópinn sinn
Þorsteinn Halldórsson tilkynnti í dag hópinn sinn fyrir lokaleiki kvennalandsliðsins í Þjóðadeildinni. Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundinum og nú er hægt að horfa á hann aftur hér á Vísi.

Tveir nýir markverðir inn í hópinn og Ólöf snýr aftur
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur valið hópinn sinn fyrir tvo síðustu leiki íslensku stelpnanna í Þjóðadeildinni.

Ísland gæti spilað heimaleiki í kringum London, Köben eða Alicante
Ísland mun leika heimaleiki sína í byrjun næsta árs á erlendri grundu. Ekki liggur fyrir hvar spilað verður, en Norðurlöndin koma sterklega til greina.

Glódís um vítaspyrnudóminn: „Ég held að þetta hafi verið rangt“
Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var nokkuð stolt af frammistöðu íslenska kvennalandsliðsins þrátt fyrir 2-0 tap gegn Þjóðverjum í gær. Hún efast þó um að það hafi verið réttur dómur að dæma vítaspyrnu á Telmu Ívarsdóttur, markvörð íslenska liðsins.

Sjáðu myndirnar úr súru tapi stelpnanna gegn Þjóðverjum
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 2-0 tap er liðið tóka á móti Þjóðverjum á Laugardalsvelli í gærkvöldi.

„Maður þarf stundum að reyna að leika aðeins á þessa dómara“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var eðlilega súr og svekkt eftir 2-0 tap gegn Þjóðverjum á Laugardalsvelli í Þjóðadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Selma Sól: Mér fannst við bara gera nóg
Ísland tapaði 2-0 gegn Þýskalandi í Þjóðadeild kvenna á Laugardalsvelli í kvöld. Eftir fjóra leiki er íslenska liðið með þrjú stig í þriðja sæti riðilsins. Selma Sól lék 86 mínútur á miðjunni hjá Íslandi í dag og var svekkt með tapið.

Sædís Rún: „Ótrúlega fúlt að fá ekkert úr þessum glugga“
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 0-2 tap þegar liðið tók á móti Þýskalandi í Þjóðadeild kvenna á Laugardalsvelli í kvöld. Sædís Rún Heiðarsdóttir, vinstri bakvörður liðsins, gaf sig til tals við blaðamann strax að leik loknum.

Einkunnir Íslands gegn Þýskalandi: Engin framúrskarandi gegn feiknasterkum Þjóðverjum
Íslenska landslið kvenna í knattspyrnu mátti þola 0-2 tap fyrir Þýskalandi í Þjóðadeildinni. Frá fyrstu mínútu var Ísland í nauðvörn gegn síógnandi Þjóðverjum. Þær héldu markinu hreinu út fyrri hálfleikinn en stíflan brast þegar Telma Ívarsdóttir gaf frá sér víti á 64. mínútu. Erfitt er að veita leikmönnum háar einkunnir eftir slíka frammistöðu en átta leikmenn Íslands eru jafnir með hæstu einkunn [6].

Umfjöllun: Ísland - Þýskaland 0-2 | Erfitt kvöld á Laugardalsvelli
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 0-2 tap er liðið tók á móti Þjóðverjum í Þjóðadeild kvenna á Laugardalsvelli í kvöld.

Byrjunarlið Íslands: Hafrún og Ingibjörg koma inn
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur valið þá ellefu leikmenn sem verða í byrjunaliði liðsins gegn Þjóðverjum á Laugardalsvelli í kvöld.

Svona var blaðamannafundur íslenska landsliðsins
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik kvennalandsliðsins gegn Þýskalandi í Þjóðadeildinni.

„Svekkjandi að hafa ekki fengið neitt út úr þessu“
Íslenska landsliðið mátti þola sárt og svekkjandi 0-1 tap gegn Danmörku í 3. umferð Þjóðadeildar kvenna. Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði liðsins og maður leiksins að mati álitsgjafa Vísis, gaf sig til tals við blaðamann strax að leik loknum.

„Gríðarlega þakklát fyrir traustið“
„Mjög súrt,“ sagði Sædís Rún Heiðarsdóttir um 1-0 tapið gegn Danmörku í Þjóðadeildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Sædísar í byrjunarliði A-landsliðs Íslands.

Agla María: Spilamennskan var miklu betri en upp á síðkastið
„Klárlega, sköpuðum okkur einhver færi og spilamennskan var miklu betri en upp á síðkastið,“ sagði landsliðskonan Agla María Albertsdóttir aðspurð hvort 0-1 tap Íslands gegn Danmörku í Þjóðadeild kvenna í fótbolta hefði ekki verið í súrari kantinum.

Umfjöllun: Ísland - Danmörk 0-1 | Sárt tap sem skýrir stöðuna
Ísland varð að sætta sig við nístingssárt tap gegn Danmörku í þriðja leik sínum í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta kvenna, á Laugardalsvelli í kvöld. Íslendingar eru með þrjú stig í riðli 3 en Danir með fullt hús stiga eða níu.

Einkunnir Íslands gegn Danmörku: Fyrirliðinn fremstur í svekkjandi tapi
Ísland mátti þola 0-1 tap gegn Danmörku í 3. umferð Þjóðadeildarinnar. Íslenska liðið reyndi fyrir sig í nýju leikkerfi sem hentaði vel varnarlega en þegar komið var fram á völlinn fundu þær fá færi. Fyrirliðinn og miðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir stóð upp úr og var valin maður leiksins í liði Íslands.

Sædís Rún byrjar í fyrsta sinn í A-landsliðinu
Stjörnukonan Sædís Rún Heiðarsdóttir er í byrjunarliði Íslands á móti Danmörku í Þjóðadeild kvenna á Laugardalsvellinum í kvöld.

Selma Sól: Við þurfum að toga þær niður á jörðina
Selma Sól Magnúsdóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta mæta Dönum í Laugardalnum í kvöld.