Landslið karla í fótbolta

Ari um síðasta árið í landsliðinu: „Það var allt í bulli“
Ari Freyr Skúlason tilkynnti fyrr í vikunni að knattspyrnuferli hans myndi ljúka þegar tímabilið í Svíþjóð klárast eftir tvær vikur. Hann fór út í atvinnumennsku ungur að aldri og hefur leikið í Svíþjóð, Belgíu og Danmörku en segir gullaldarárin með íslenska landsliðinu standa upp úr þegar litið er yfir ferilinn.

Ari Freyr leggur skóna á hilluna og snýr sér að þjálfun
Ari Freyr Skúlason hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir feril sem spannar nærri tvo áratugi. Hann mun nú snúa sér að þjálfun hjá IFK Norrköping í Svíþjóð, þar sem hann hefur spilað undanfarin ár.

Segir að brottreksturinn frá KSÍ hafi verið pólitískur
Arnar Þór Viðarsson segir að það hafi verið pólitísk ákvörðun hjá KSÍ að segja sér upp sem þjálfara karlalandsliðs Íslands í fótbolta. Hann segir jafnframt að það hafi verið gríðarlega erfitt að stýra landsliðinu meðan hann var við stjórnvölinn hjá því.

Ísland stendur í stað á nýjum heimslista FIFA
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta stendur í stað á nýuppfærðum heimslista FIFA og er sem fyrr í 67. sæti listans.

Fær góð ráð frá pabba: „Maður er bara alltaf að reyna passa í sporin“
Einar Þorsteinn Ólafsson er að feta sín fyrstu skref í atvinnumennskunni í handbolta. Hann er á sínu öðru tímabili með danska úrvalsdeildarfélaginu Fredericia og spilar þar undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar. Þá nýtur hann leiðsagnar frá föður sínum, sem er öllum hnútum kunnugur í þessum efnum.

Þjóðirnar sem Ísland styður svo strákarnir komist í umspilið
Hvað þarf að gerast svo að von Íslands um sæti á EM í Þýskalandi 2024 lifi? Vísir lagðist yfir stöðuna og hefur fundið út með hvaða þjóðum við eigum að halda í síðustu tveimur umferðunum í undankeppni Evrópumótsins en þær fara fram í næsta mánuði.

Stórkostlegt mark Davíðs tryggði Íslandi sigur: Adam Ingi varð hetja liðsins
Undir 21 árs landslið Íslands í fótbolta vann í dag afar sætan 1-0 sigur á Litháen í undankeppni EM 2025. Sigurmark Íslands, skorað af Davíð Snæ Jóhannssyni var einkar glæsilegt og þá reyndist varamarkvörður liðsins, Adam Ingi, hetjan undir lok leiks.

Markametið hans Gylfa í tölum
Gylfi Þór Sigurðsson bætti í gær markamet íslenska karlalandsliðsins þegar hann varð sá fyrsti í sögunni til að skora 27 mörk fyrir íslenska landsliðið.

Van Dijk hjálpaði íslenska landsliðinu í gærkvöldi
Íslenska landsliðið á enn möguleika á því að komast í úrslitakeppni EM næsta sumar en möguleiki strákanna okkar liggur nú í að fara í gegnum umspil Þjóðadeildarinnar.

Myndir: Gylfi Þór markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi
Ísland vann 4-0 sigur á Liechtenstein í undankeppni EM 2024 í fótbolta. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði tvö markanna og varð um leið markahæsti leikmaður í sögu íslenska karlalandsliðsins.

Mörkin á Laugardalsvelli og vítaspyrnurnar sem fóru forgörðum
Ísland vann Liechtenstein 4-0 í undankeppni EM 2024 í fótbolta. Sigurinn var síst of stór en hans verður munað sem leiksins þar sem Gylfi Þór Sigurðsson bætti markamet íslenska karlalandsliðsins.

Alfreð: Andstæðingurinn var ekki mættur til þess að spila fótbolta
Ísland vann sannfærandi 4-0 sigur gegn Liechtenstein. Alfreð Finnbogason, leikmaður íslenska landsliðsins í fótbolta, skoraði eitt mark og var ánægður með sigurinn.

Umfjöllun: Ísland - Liechtenstein 4-0 | Gylfi er algjört met
Gylfi Þór Sigurðsson stal senunni þegar Ísland vann öruggan sigur á Liechtenstein á Laugardalsvelli í kvöld, 4-0, í undankeppni EM í fótbolta.

Åge Hareide: „Fannst Gylfi eiga þetta skilið“
„Ég er alltaf glaður þegar við vinnum. Það eru alltaf smáatriði í þessum alþjóðlega fótbolta sem skipta sköpum og mér finnst þau hafa fallið stundum gegn okkur, eins og gegn Slóvakíu, Portúgal og Lúxemborg. Það var gott að ná öruggum sigri,“ sagði Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, eftir 4-0 sigurinn gegn Liechtenstein í kvöld.

„Hann er ekkert eðlilega góður í fótbolta og gott að fá hann aftur“
Hákon Arnar Haraldsson skoraði fjórða mark Íslands er liðið vann öruggan 4-0 sigur gegn Liechtenstein í forkeppni EM 2024 í kvöld.

Einkunnir Íslands: Gylfi Þór maður leiksins
Ísland vann öruggan 4-0 sigur gegn Liechtenstein í níundu umferð undankeppni EM 2024. Gylfi Þór var maður leiksins en hann skoraði tvö mörk og sló markametið.

Gylfi Þór: Búinn að dreyma um þetta í eitt og hálft ár
Gylfi Þór Sigurðsson viðurkenndi að hann hefði beðið lengi eftir því að bæta markamet íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Það gerði hann í kvöld þegar hann skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Íslands á Liechtenstein.

Twitter eftir leik: „Okkar allra besti landsliðsmaður“
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann öruggan 4-0 sigur gegn Liechtenstein í undankeppni EM 2024 í kvöld. Eins og við var að búast fylgjast íslenskir áhorfendur vel með og láta skiðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlinum X, sem áður hét Twitter.

Gylfi Þór markahæstur
Gylfi Þór Sigurðsson er orðinn markahæsti leikmaður í sögu íslenska karlalandsliðsins.

Byrjunarlið Íslands: Gylfi Þór snýr aftur í byrjunarliðið
Byrjunarlið Íslands fyrir leik kvöldsins gegn Liechtenstein í undankeppni EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar er klárt. Gylfi Þór Sigurðsson kemur inn í byrjunarliðið eftir að hafa komið inn af bekknum í síðasta leik.

Landsliðsstrákar kepptu í spurningakeppni: Hótaði að kæra keppnina
Íslensku landsliðsmennirnir Jón Dagur Þorsteinsson og Guðmundur Þórarinsson skemmtu sér og öðrum í spurningakeppni á hóteli íslenska landsliðsins í aðdraganda leiks Íslands og Liechtenstein í undankeppni EM í kvöld.

Åge viss um að Gylfi muni slá markametið bara kannski ekki í kvöld
Åge Hareide stýrir íslenska landsliðinu á Laugardalsvellinum í kvöld á móti Liechtenstein í síðasta heimaleik Íslands.

Aron Einar: Gylfi bætir æfingar og allt í kringum landsliðið
Aron Einar Gunnarsson verður aftur fyrirliði íslenska landsliðsins í leiknum á móti Liechtenstein í kvöld en hann mætti fyrir hönd íslenska liðsins á blaðamannafund í gær.

Utan vallar: Fær íslenska þjóðin nostalgíukvöld í Laugardalnum í kvöld?
Eitt það mest spennandi við landsleik Íslands og Liechtenstein á Laugardalsvellinum í kvöld er kannski það hvað verður hlutverk Gylfa Þórs Sigurðssonar í leiknum.

Svona var blaðamannafundur KSÍ
Åge Hareide landsliðsþjálfari og Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði sátu fyrir svörum á blaðamannafundi KSÍ í dag.

Myndasyrpa úr leik Íslands gegn Lúxemborg
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði 1-1 jafntefli við Lúxemborg í undankeppni EM 2024. Stórtíðindi leiksins urðu þau að Gylfi Þór Sigurðsson spilaði sinn fyrsta landsleik í langan tíma og Orri Steinn Óskarsson skoraði sitt fyrsta landsliðsmark.

Sjáðu mörkin úr leik Íslands gegn Lúxemborg
Orri Steinn Óskarsson skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í 1-1 jafntefli Íslands gegn Lúxemborg í kvöld.

„Í landsleikjum verðum við að nýta færin þegar þau koma“
Ísland gerði svekkjandi 1-1 jafntefli gegn Lúxemborg. Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, var svekktur með seinni hálfleik liðsins.

Umfjöllun: Ísland - Lúxemborg 1-1 | Sár vonbrigði í endurkomu Gylfa
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta varð að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli í kvöld. Þar með er vonin um að komast beint á EM úr undankeppninni algjörlega úr sögunni.

Einkunnir Íslands: Orri Steinn bestur
Ísland tók á móti Lúxemborg í áttundu umferð undankeppni EM 2024 á Laugardalsvelli. Ísland var töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og var yfir í hálfleik með marki frá Orra Steini Óskarssyni.