
Landslið kvenna í handbolta

Fóru illa að ráði sínu gegn Egyptum
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri gerði jafntefli við Egyptaland, 20-20, í fyrri leik liðsins í milliriðlakeppni á HM í Kína.

Stelpurnar unnu Gíneu en spila um Forsetabikarinn
Íslenska stúlknalandsliðið í handbolta, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, fagnaði sínum fyrsta sigri á HM í Kína í dag þegar liðið lagði Gíneu að velli, 25-20.

Sonur Söndru og Daníels kominn í heiminn
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason, landsliðsfólk í handbolta, hefur eignast sitt fyrsta barn.

„Miklar tilfinningasveiflur sem tóku við“
Elín Klara Þorkelsdóttir var valin í úrvalslið HM í handbolta fyrst íslenskra kvenna á dögunum eftir frábæra frammistöðu með undir tuttugu ára landsliði Íslands sem náði besta árangri íslensks kvennalandsliðs á stórmóti með því að tryggja sér sjöunda sæti mótsins. Elín segir kjarnann sem myndaði lið Íslands á mótinu einstakan. Persónuleg frammistaða Elínar, sem er leikmaður Hauka, á HM mun án efa varpa kastljósinu á hana. Elín er hins vegar ekki á leið út í atvinnumennsku alveg strax.

„Geri mér alveg grein fyrir því að þetta sé á einhvern hátt umdeilt“
Landsliðsþjálfari Íslands í handbolta verður aðstoðarþjálfari kvennaliðs Fram í Olís-deild kvenna á næsta tímabili. Hann segir að ekki ættu að koma upp hagsmunaárekstrar.

Elín Klara valin í lið mótsins á HM
Íslenska handboltakonan Elín Klara Þorkelsdóttir var valin í liði mótsins á heimsmeistaramóti tuttugu ára landsliða sem lauk í Norður Makedóníu í gær. Íslensku stelpurnar urðu í sjöunda sæti sem er besti árangur Íslands á þessu móti.

Stelpurnar tryggðu sér sjöunda sætið
Stelpurnar í íslenska U-20 ára landsliðinu í handbolta tryggðu sér 7. sætið á HM í Norður-Makedóníu með sigri á Sviss í morgun, 29-26.

Segir framlög til afreksíþrótta alltof lág: „Þessar 392 milljónir duga engan veginn“
Landsliðsþjálfari Íslands í handbolta segir að setja þurfi miklu meiri fjármuni í allt íþróttastarf hér landi. Forvarnir ættu að spara marga milljarða inni í heilbrigðiskerfinu.

Hetjuleg barátta dugði ekki til sigurs gegn Evrópumeisturunum
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri laut í lægra haldi gegn Evrópumeisturunum frá Ungverjalandi í framlengdum leik átta liða úrslitum á HM í kvöld. Stelpurnar okkar sýndu hetjulega baráttu í leiknum.

Íslensku stelpurnar mæta Ungverjum í átta liða úrslitum
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri mun mæta Ungverjum í átta líða úrslitum HM sem nú fer fram í Norður-Makedóníu.

Ísland í sextán liða úrslit
Ísland lagði heimalið Norður-Makedónía á HM U-20 kvenna í handbolta með tólf marka mun, 29-17. Sigurinn tryggði liðinu sæti í 16-liða úrslitum mótsins.

Íslensku stelpurnar hófu HM á sigri
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann góðan fimm marka sigur er liðið mætti Angóla í fyrsta leik HM U20 ára landsliða í Norður-Makedóníu í dag, 24-19.

Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“
Framkvæmdastjóri HSÍ harmar grafalvarlega stöðu vegna ungs afreksíþróttafólks sem þarf að treysta á hundruð þúsunda útgjöld foreldra til að taka þátt í landsliðsverkefnum. Ráðherra íþróttamála segir ekki hægt að bregðast við stöðunni fyrr en á næsta ári.

Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, gagnrýnir harðlega úthlutanir til Afrekssjóðs ÍSÍ í pistli á Facebook.

Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“
Liðsmenn í U18 landsliði kvenna í handbolta þurfa að greiða 600 þúsund krónur úr eigin vasa fyrir að keppa á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Kína í ár. Móðir einnar úr liðinu segir stuðnings við afreksíþróttafólk frá ríkinu ábótavant og spyr hvort samfélagið vilji í alvörunni koma fram við afreksíþróttafólk landsins með þessum hætti.

Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar
Evrópska handboltasambandið hefur tilnefnt mark íslensku landsliðskonunnar Perlu Ruth Albertsdóttur sem eitt af flottustu mörkunum í undankeppni EM 2024.

Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“
Í gær varð ljóst hvaða liðum Ísland mætir á Evrópumóti kvenna í handbolta sem hefst í lok nóvember. Spennan er mikil á meðal landsliðskvenna enda eru tólf ár síðan liðið komst síðan þangað.

Ísland í erfiðum riðli á EM
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta verður í riðli með Hollandi, Þýskalandi og Úkraínu á EM í lok árs. Austurríki, Ungverjaland og Sviss halda mótið í sameiningu.

Mögnuð Elín Jóna mikilvægasti leikmaður síðustu umferðar undankeppninnar
Markvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir var hreinlega mögnuð þegar Ísland tryggði sér sæti á EM 2024 kvenna í handbolta sem fram fer í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss síðar á þessu ári.

Ísland ekki í neðsta flokki fyrir EM
Í fyrsta skipti í tólf ár verður nafn Íslands í skálinni þegar dregið verður í riðla Evrópumóts kvenna í handbolta eftir tíu daga. Ísland er í þriðja styrkleikaflokki og því í fyrsta sinn ekki í neðsta flokknum.

„Við viljum vera inn á öllum Evrópumótum“
Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, var kampakátur eftir fjögurra marka sigur á Færeyjum á Ásvöllum í dag. Með sigrinum er það ljóst að íslenska liðið leikur á Evrópumótinu í nóvember og það í fyrsta sinn síðan 2012.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Færeyjar 24-20 | Stelpurnar tryggðu sér sæti á EM
Íslenska landsliðið sigraði Færeyjar, 24 – 20, í sínum síðasta leik í undankeppni EM 2024 á Ásvöllum í dag. Með sigrinum er það ljóst að íslenska kvennalandsliðið leikur á Evrópumótinu í handbolta í nóvember en liðið endaði í öðru sæti í undanriðlinum, fjórum stigum undan Færeyjum.

Umfjöllun: Lúxemborg - Ísland 15-31 | EM draumurinn lifir góðu lífi
Ísland rúllaði yfir Lúxemborg ytra. Íslenska liðið nýtti sér gæðamuninn og var aldrei í vandræðum. Leikurinn endaði með sextán marka sigri Íslands 15-31.

EM-sætið undir í vikunni: „Erum búin að bíða eftir þessu í töluverðan tíma“
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta er aðeins tveimur sigrum frá því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í handbolta sem fram fer í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss næsta vetur.

Landsliðið til Lúxemborgar en þrjár urðu eftir á Íslandi
Kvennalandslið Íslands í handbolta hélt í morgun af stað til Lúxemborgar þar sem liðið mætir heimakonum á miðvikudag, í næstsíðasta leiknum í undankeppni EM.

Ætlar að hjálpa Íslandi inn á EM en fara svo í frí
Elín Jóna Þorsteinsdóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta voru með á síðasta heimsmeistaramóti og þær geta í næstu viku tryggt sér sæti á öðru stórmótinu í röð.

„Staðráðnar í því að láta drauminn rætast“
Sunna Jónsdóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta geta tryggt sér sæti á Evrópumótinu um næstu helgi.

„Þetta er pínu öðruvísi, ég viðurkenni það“
Steinunn Björnsdóttir, leikmaður Fram, er komin aftur í íslenska landsliðshópinn eftir smá fjarveru en Steinunn eignaðist sitt annað barn í nóvember.

Eiga að koma Íslandi á EM: Steinunn fljót í landsliðið eftir barnsburð en Þórey Anna ekki með
Arnar Pétursson hefur valið þá leikmenn sem hann treystir á að komi Íslandi í lokakeppni EM kvenna í handbolta þegar undankeppnin klárast í byrjun næsta mánaðar.

Umfjöllun: Svíþjóð - Ísland 37-23 | Góð byrjun dugði skammt
Byrjun Íslands var frábær þar sem liðið skoraði fyrstu fjögur mörkin. Svíar létu það ekki slá sig út af laginu og rúlluðu yfir íslenska liðið það sem eftir var leiks. Leikurinn endaði með fjórtán marka tapi 37-23.