Hnífstunguárás á Bankastræti Club
1 2 3 … 3 ›
Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar um að fella niður mál ákæruvaldsins á hendur Alexander Mána Björnssyni, sem hætti við að áfrýja sex ára dómi í Bankastrætis club málinu svokallaða. Ómar Valdimarsson, verjandi hans, fór fram á að krafa um endurákvörðun málsvarnarlauna í héraði yrði tekin fyrir þrátt fyrir að fallið yrði frá málinu að öðru leyti. Innlent 26.9.2024 15:00
Segist ekki vanhæf vegna „harla óvenjulegs“ tölvupósts Ómars Sigríður Hjaltested, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, þarf ekki víkja úr sæti úr dómsmáli líkt og Ómar R. Valdimarsson lögmaður krafðist. Hann vildi að Sigríður tæki mögulegt vanhæfi sitt til skoðunar vegna fyrri samskipta þeirra á milli, sem tengjast sakamáli sem hefur verið kennt við skemmtistaðinn Bankastræti Club. Innlent 26.1.2024 16:35
Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 2.1.2024 08:47
Óútskýrðar hvítar flygsur en ekki hnífur Alexander Máni Björnsson var í dag dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps. Hann var sýknaður af ákæru um eina tilraun til manndráps þar sem ekki var talið sannað að hann hefði lagt að þriðja brotaþolanum með hnífi. Verjandi hans staðhæfði að annar hnífur hafi sést á myndskeiði frá vettvangi en dómari telur að um „hvítar flygsur“ hafi verið að ræða frekar en hníf. Innlent 22.11.2023 13:31
Alexander Máni dæmdur í sex ára fangelsi Alexander Máni Björnsson, tvítugur karlmaður, hefur verið dæmdur til sex ára fangelsisvistar, fyrir aðild sína að hnífstunguárásinni á Bankastræti Club. Innlent 22.11.2023 08:40
Vaktin: Örlög sakborninganna 25 ráðast í dag Dómsuppsaga í Bankastrætis Club-málinu, einu umtalaðasta sakamáli Íslandssögunnar, hefst klukkan 08:30 í dag. 25 sakborningar verða þá ýmist sakfelldir eða sýknaðir og hljóta refsingu eftir atvikum. Fylgst verður með gangi mála hér í vaktinni. Innlent 22.11.2023 08:01
Losnaði úr fangelsi fjórum mánuðum eftir tveggja ára dóm Karlmaðurinn sem særðist í skotárás við Silfratjörn í Úlfarsárdal í síðustu viku losnaði úr fangelsi í sumar. Hann hlaut tveggja ára fangelsisdóm í mars fyrir sérlega hættulega líkamsárás, en losnaði úr fangelsi í júlí. Ástæðan mun vera sú að hann hafði þegar afplánað stóran hluta refsingar sinnar í gæsluvarðhaldi. Innlent 7.11.2023 14:43
Krefst átta ára dóms: Búkmyndavél notuð við óvænta skýrslutöku Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari hjá héraðssaksóknara fór fram á átta ára fangelsisdóm yfir Alexander Mána Björnssyni í Bankastræti Club-málinu í málflutningi sínum í morgun. Búkmyndavél var notuð til að taka upp óvænta skýrslu yfir Alexander fyrir hádegi. Innlent 2.10.2023 12:54
Dró játningu skyndilega til baka Alexander Máni Björnsson, sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps í Bankastræti-Club málinu svonefnda, hefur dregið aðra játningu af tveimur fyrir hnífsstungu til baka. Það gerði hann við upphaf þinghalds í Gullhömrum í morgun. Innlent 2.10.2023 10:17
„Ég vissi ekki að hann væri alvitur“ Rannsóknarlögreglumaður, sem stýrði rannsókn á hnífstunguárásinni á Bankastræti Club, fullyrti þegar hann gaf skýrslu fyrir dómi í dag að aðeins einum hníf hafi verið beitt í árásinni. „Ég vissi ekki að hann væri alvitur,“ sagði verjandi manns, sem ákærður er fyrir þrjár tilraunir til manndráps, en dró ummælin síðar til baka. Innlent 29.9.2023 15:46
Kannast hvorki við „Latino-hópinn“ né meinta vargöld Brotaþolar í Bankastrætis Club málinu segjast hvorki kannast við svokallaðan „Latino-hóp“ né meinta vargöld sem sakborningar í málinu hafa lýst milli hópsins og hóps sakborninga. Innlent 29.9.2023 07:00
Dreifðu grímum á Dubliner og ræddu vopnaburð á Prikinu Sakborningar í Bankastrætis Club málinu báru um fyrir dómi að um hafi verið að ræða einhvers konar uppgjör við hóp manna sem kallaður hefur verið „Latino-hópurinn“. Sakborningarnir hafi ruðst 25 saman inn á skemmtistað til þess að ógna meðlimum hópsins. Innlent 28.9.2023 18:01
„Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég hefði játað að hafa stungið alla þrjá“ Alexander Máni Björnsson, tæplega tvítugur karlmaður sem sætir ákæru fyrir þrjár tilraunir til manndráps á Bankastræti Club í febrúar í fyrra, segir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann væri að játa þrjár hnífstungur við þingfestingu málsins. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki að hafa ætlað að ráða þeim bana. Innlent 28.9.2023 16:06
Vildi spila viðtal við brotaþola Skýrslutökur brotaþola og annarra vitna hófust í morgun og því er töluvert fjölmennara í dómsal í Gullhömrum við aðalmeðferð Bankastrætis Club málsins en síðustu daga. Þónokkrir sem sæta ákæru eru mættir til þess að fylgjast með framgangi mála, þar á meðal sá eini sem ákærður er fyrir að hafa reynt að verða brotaþolum að bana. Innlent 28.9.2023 13:40
„Dómari, við heyrum ekkert í honum í ódýru sætunum hérna aftast“ Aðalmeðferð í Bankastrætis Club málinu svokallaða var haldið áfram í morgun og nú hafa allir sem sæta ákæru fyrir annað en hlutdeild í árásinni gefið skýrslu. Mikið umstang hefur verið í Gullhömrum og laganemar kíktu í heimsókn fyrir hádegi. Innlent 26.9.2023 13:48
Verjendur óánægðir með kaffiskort Á þriðja tug lögmanna eru saman komnir til þess að verja skjólstæðinga sína í Bankastrætis Club málinu svokallaða í veislusalnum Gullhömrum í dag. Skipuleggjendur aðalmeðferðarinnar virðast hafa gleymt að hella upp á kaffi, verjendum til mikils ama. Innlent 25.9.2023 15:46
Fá ekki að hlusta hver á annan Ákveðið var í undirbúningsþinghaldi í Bankastræti-Club málinu í morgun að sakborningar myndu ekki sitja inni í dómsal í Gullhömrum. Þeir munu sitja því frammi og koma inn einn af öðrum. Verjendur mótmæla ákvörðuninni. Á fimmtudag verður fjölmiðlabanni aflétt. Innlent 25.9.2023 10:17
Skýrslutökur hefjast í veislusal Aðalmeðferð í Bankastræti Club málinu svokallaða hefst í veislusalnum Gullhömrum í dag. Á þriðja tug manna hafa stöðu sakbornings og búist er við því að á annað hundrað verði viðstaddir aðalmeðferðina. Innlent 25.9.2023 09:13
„Þetta var algjört sjokk“ Í síðasta þætti af raunveruleikaþættinum LXS á Stöð 2 var hnífstungumálið á Bankastræti Club rifjað upp en ein af stjörnum þáttanna Birgitta Líf Björnsdóttir rak og átti hlut í skemmtistaðnum fyrir ekki svo löngu. Lífið 14.9.2023 10:31
Segir atburðarásina hafa þróast út í múgæsingu Maður á fertugsaldri sem er meðal ákærðu í Bankastræti Club-málinu svokallaða neitar því staðfastlega að vera ofbeldismaður og segist ekki hafa haft í hyggju að fara inn hið örlagaríka kvöld þegar hópur veittist að þremur mönnum á skemmtistaðnum. Innlent 13.9.2023 07:34
B5 verður að B eftir lögbann Eigendur skemmtistaðar í Bankastræti fimm hafa tekið ákvörðun um að breyta nafni staðarins úr B5 í B. Lögbann var sett á notkun nafnsins B5 sem var í eigu annars félags. Viðskipti innlent 17.8.2023 12:12
Játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá Fyrirtöku í Bankastræti club-málinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaður, sem ákærður er fyrir alvarlegasta hluta líkamsárásarinnar, breytti afstöðu sinni til sakargifta. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá eins og áður. Innlent 14.7.2023 17:33
Aðalmeðferð í Bankastræti Club-málinu fer fram í veislusal Aðalmeðferð í Bankastræti Club-málinu svokallaða mun fara fram í veislusal í veitingahúsinu Gullhömrum í Grafarholti í Reykjavík. Sakborningar í málinu eru á þriðja tug og því er ekki hægt að halda aðalmeðferði í dómshúsinu að Lækjartorgi. Innlent 9.6.2023 20:27
Handteknu sleppt: „Einhver tenging“ við árásina á Bankastræti Club Einstaklingarnir fjórir sem voru handteknir í kjölfar slagsmála í miðborginni á miðvikudagskvöld hafa verið látnir lausir. Innlent 24.3.2023 11:04
Augljóst að aðalmeðferð geti ekki farið fram við Lækjartorg Verjandi nítján ára manns sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember í fyrra segir gæsluvarðhald sem hann hefur sætt leggjast verulega á hann. Hann sér ekki hvernig aðalmeðferð í málinu eigi að geta farið fram í húsakynnum Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 21.3.2023 14:45
Vildi ekki svara því hvort hann hefði verið á Bankastræti Club Þingfestingu í Bankastræti Club málinu var framhaldið eftir hádegi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fimm karlmenn til viðbótar komu fyrir dóminn og neituðu allir sök í málinu. Einn ákærðu vildi ekki svara spurningunni hvort hann hefði verið á skemmtistaðnum umrætt kvöld. Innlent 21.3.2023 14:00
Með lambhúshettu í dómsal Ákæra gegn 25 mönnum vegna líkamsárásar á Bankastræti Club í nóvember verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vegna þess fjölda sem er ákærður í málinu fer þingfesting fram í fjórum hollum og verða sex til sjö leiddir fyrir dómara í einu. Hinir ákærðu huldu andlit sín, meðal annars með lambhúshettu, áður en þingsal var lokað. Innlent 21.3.2023 10:31
Þingfesta ákæru gegn 25 mönnum vegna árásarinnar á Bankastræti Club Ákæra á hendur 25 karlmönnum á aldrinum átján til 36 ára vegna árásarinnar á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Nítján ára karlmaður er ákærður fyrir tilraun til manndráps og tíu félagar hans fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Innlent 21.3.2023 08:51
25 ákærðir fyrir hnífaárásina á Bankastræti Club Héraðssaksóknari hefur ákært 25 í tengslum við rannsókn sína á hnífaárás á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember í fyrra. Einn er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Innlent 10.2.2023 17:26
Gerði eggvopn úr gaffli og notaði AA-fund til að komast að fórnarlambinu Fangi í gæsluvarðhaldsfangelsinu á Hólmsheiði notaði sérútbúið eggvopn til þess að ráðast að manni fyrr í vikunni. Hann nýtti sér AA-fund til að komast að fórnarlambinu sem var vistað á öðrum gangi. Árásin tengist deilu tveggja hópa í tengslum við hnífstunguárás á Bankastræti Club. Fangelsismálastjóri segir að nokkuð sé um haldlagningar á heimagerðum vopnum. Innlent 27.1.2023 13:45