
Sjókvíaeldi

Segir meðaltalsútreikning Hafró ekki málið
Jón Scheving Thorsteinsson hjá Arev fór yfir álitsgerð sem hann vann að undirlagi Landsambands veiðifélaga vegna áhættumats Hafró vegna sjókvíaeldis á fundi í morgun.

Kristinn braut siðareglur Blaðamannafélagsins
Kristinn H. Gunnarsson ritstjóri Bæjarins besta telst hafa brotið Siðareglur blaðamannafélags Íslands og er brotið ámælisvert.

Færeyingar fagna fiskflutningaþotu
Boeing 757-fraktflutningaþota færeyska flugfélagsins FarCargo fékk hátíðlegar móttökur á Voga-flugvelli þegar hún lenti í fyrsta sinn í Færeyjum síðdegis í gær. Helstu ráðamenn eyjanna voru meðal gesta í móttökuathöfn, þeirra á meðal Aksel V. Johannessen, lögmaður Færeyja, og Høgni Hoydal utanríkis- og atvinnumálaráðherra, og fékk þotan heiðursbunu frá flugvallarslökkviliðinu þegar hún ók í hlað.

Arctic Sea Farm fær að rækta fleiri fiska í Ísafjarðardjúpi
Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 5. júní og var frestur til að skila inn athugasemdum til 5. júlí 2023.

Segja lirfur hafa borist á milli eldissvæða og fyrirtækin hafi verið illa undirbúin
Ljóst er að rekstraraðilar í sjókvíaeldi voru illa búnir til þess að verjast miklu magni af laxalús og leiða má líkur að því að áhrif laxalúsarinnar hafi verið vanmetin.

Íslenskum ríkisborgurum hefur fækkað jafnt og þétt þar sem sjókvaíeldi á laxi er mest við Ísland
Í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands kemur fram að íslenskum ríkisborgurum hefur fækkað jafnt og þétt þar sem sjókvíaeldi á laxi er mest við Ísland, á sunnanverðum Vestfjörðum. Þetta er þvert á það sem hagsmunagæslusamtök sjókvíaeldisfyrirtækja hafa haldið fram en meginrök þeirra hafa verið að sjókvíaeldi á laxi styrki búsetu í brothættum sjávarbyggðum og laði til baka ungt fólk sem hefur flutt úr þessum bæjum og þorpum. Það er rangt.

Skynsemin mun sigra
Fyrir skömmu óskaði Heimildin eftir viðbrögðum forstjóra norska sjókvíaeldisrisans Mowi við heimildarmyndinni Laxaþjóð - Salmon Nation, sem útivistarfyrirtækið Patagonia framleiddi og fjallar um sjókvíaeldi á Íslandi.

Engin byggingarleyfi í höfn þvert á fullyrðingar Arctic Fish
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur ekki gefið út byggingarleyfi vegna sjókvía. Þetta segir í svörum HMS við fyrirspurn fréttastofu en tilefnið eru ummæli sem höfð voru eftir framkvæmdastjóra Arctic Fish í Bæjarins besta um að leyfi væri í höfn.

Hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi áður en það verður of seint
Umhverfisráðherra Washingtonríkis í Bandaríkjunum hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi. Hún segist óska þess að hún sjálf hefði bannað það í heimaríkinu áður en 350 þúsund eldislaxar sluppu út í náttúruna.

Sjókvíar byggingarleyfisskyldar og starfsemin sé því ólögleg
Frá og með deginum í dag verður gerð krafa um byggingarleyfi vegna sjókvía þar sem þau teljast mannvirki samkvæmt lögum. Lögfræðingur segir að stöðva þurfi starfsemi sjókvíaeldisfyrirtækja þar til búið sé að afla tilskilinna leyfa. Samfélagið hafi stórtapað á því að lögin hafi ekki verið virkjuð fyrr.

Heimsfrumsýning í Gamla bíó: „Þetta var eins og að koma á vettvang glæps“
Viðamikil dagskrá fer fram annað kvöld í Gamla bíó þegar heimildarmynd um fiskeldi á Íslandi, Laxaþjóð, verður heimsfrumsýnd. Myndin er framleidd af bandaríska útivistarvöruframleiðandanum Patagonia.

LV varar saksóknara við Helga Magnúsi
Saksóknara hefur borist ábending frá Landsambandi Veiðifélaga þar sem vakin er athygli á mögulegu vanhæfi Helga Magnúsar Gunnarssonar varasaksóknara.

Stór kærubunki vegna ákvörðunar lögreglustjórans
Ríkissaksóknara bárust 27 kærur vegna ákvörðunar lögreglustjórans á Vestfjörðum að fella niður rannsókn á slysasleppingum úr fiskeldisstöð Arctic Sea Farm.

MAST kærir niðurfellingu Helga á rannsókn
Matvælastofnun hefur kært ákvörðun Helga Jenssonar lögreglustjóra á Vestfjörðum fyrir að fella niður rannsókn máls á laxasleppingum fyrir vestan. Ríkissaksóknari fær nú málið á sitt borð og skoðar hvort ákvörðunin standi eða hvort lögreglu verði gert að hefja rannsókn að nýju.

Einn hundrað áhrifamestu manna heims óttast laxeldi á Íslandi
Rúmlega 160 umsagnir hafa borist um frumvarp matvælaráðherra um lagareldi. Ein þessara umsagna barst í fyrradag og kemur frá hinum 85 ára gamla Yvon Chouinard, stofnanda útivistarmerkisins Patagonia.

Afglapavæðing?
Það er eitthvað sérkennilegt að gerast í samfélaginu þegar íbúar lítils bæjarfélags eins og Seyðisfjarðar þurfa að fara í flókinn og rándýran málarekstur til að mæta ofríki og beinlínis lögbrotum stjórnvalda.

Spyr hvort „önnur öfl“ hafi haft áhrif á ákvörðun lögreglustjórans
Gunnar Örn Petersen framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga segir það sem kemur fram í nýrri skýrslu MAST um sjókvíaeldi Arctic Fish í Patreksfirði ekki endilega nýtt. Hann spyr hvort önnur öfl hafi haft áhrif á ákvörðun lögreglustjórans að láta mál embættisisins niður falla.

MAST íhugar að kæra Arctic Sea Farm til ríkissaksóknara
Hátt í þrjú hundruð frávik hafa orðið hjá fyrirtækjum í land- og sjóvkvíeldi hér á landi á síðustu þremur árum og þar af teljast ríflega sextíu alvarleg. Matvælastofnun íhugar að kæra fyrirtækið Arctic Sea Farm til ríkissaksóknara vegna tveggja alvarlegra mála.

Tvö alvarleg frávik hjá Arctic Sea Farm
Matvælastofnun hefur gefið Arctic Sea Farm hf, dótturfyrirtæki Arctic Fish, frest til 19. janúar að bregðast við tveimur alvarlegum frávikum sem greindust við eftirlit á starfsemi í sjókvíeldi í Kvígindisdal í Patreksfirði í september. Annað frávikið varðar ljósabúnað en hitt eftirlit neðansjávar.

Aron um Arnarlax-samninginn: „Að sjálfsögðu hefði ég kannski valið eitthvað annað fyrirtæki“
Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, er ekkert sérstaklega hrifinn af umdeildum styrktarsamningi HSÍ við sjókvíaeldisfyrirtækið Arnarlax.

Ósjálfbær iðnaður vill skjól í gloppóttum lögum
Ný drög frumvarps Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra að lögum um lagareldi taka nokkur nauðsynleg skref í viðleitni til að hemja þann faraldur sem opið sjókvíaeldi er orðið fyrir íslenska náttúru og samfélag.

Norðmenn ábyrgir fyrir skaðlegu sjókvíaeldi á Íslandi
Árið 2020 áttaði ég mig á því að hörmungar gætu fylgt stórfeldu sjókvíaeldi í opnum kvíum í fjörðum landsins. Þá skrifaði ég grein í Þjóðmál „Um nýsköpun og sjálfbærni“ þar sem ég lagði áherslu á að við héldum auðlindum landsins sem mest í okkar eigu og varaði við yfirgangi Norðmanna.

Segir lögreglustjórann á Vestfjörðum vanhæfan í málinu
Landssamband veiðifélaga hyggst kæra ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Arcitc Sea Farm í Patreksfirði í ágúst. Framkvæmdastjóri sambandsins segir ljóst að vanhæfi lögreglustjórans á Vestfjörðum í þessu máli sé algjört.

Þegar raunveruleikinn er annar en reiknað var með
Ef slepping eldislaxa úr sjókvíum Arctic Fish í Patreksfirði og útbreidd ganga þeirra í skilgreindar laxveiðiár um nánast allt land er sett inn í spálíkanið að baki gildandi áhættumati Hafrannsóknastofnunar um erfðablöndun eldislax við villta laxastofna kemur í ljós að sjókvíaeldi í núverandi magni verður ekki haldið áfram.

Umhverfissóðar framleiða „nýjan fisk“
Það eru ekki margar bækur um fiskeldi sem hafa haft jafn sterk áhrif á mig og bókin The New Fish (The Truth about Farmed Salmon and the Consequences We Can No Longer Ignore). Bókin er rituð af þeim Simon Sætre, sem var blaðamaður hjá vikublaðinu Morgenbladet, og höfundur fimm bóka og svo Kjetil Östli sem er einnig blaðamaður og handhafi Brage verðlauna bókaútgefenda og höfundur og ritstjóri Harvest Magazine.

Deilur um Kristján Loftsson og litla fræðslubók
Farsakennd atburðarás um hvalveiðar. Kristján Loftsson og konurnar í tunnunum. Krafa um afsökunarbeiðni í Karphúsinu og eftirtektarverðir Bomber jakkar Eflingarfólks. Óvænt útspil Heimis Más Péturssonar, sjókvíaeldi og hatrammar deilur um eina litla fræðslubók. Þetta eru deilur ársins 2023.

Andstæðingar sjókvíaeldis æfir vegna ákvörðunar Helga
Á forsíðu nýs tölublaðs Veiðimannsins, tímariti Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er mynd eftir Gunnar Karlsson þar sem sjókvíaeldið er teiknað upp sem ókindin í íslenskri náttúru. Niðurstaða Helga Jenssonar lögreglustjóra á Vestfjörðum, sú að fella niður rannsókn á slysasleppingum fyrir vestan, kemur illa við andstæðinga sjókvíaeldis.

Lögregla hætt rannsókn á slysasleppingum í Patreksfirði
Lögreglustjórinn á Vestfjörðun hefur hætt rannsókn á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Arctic Sea Farm ehf í Kvígindisdal í Patreskfirði í ágúst síðastliðnum en hún var hafin í kjölfar kæru Matvælastofnunar í september.

Ætlar ekkert að tjá sig um Arnarlax-samninginn
Formaður Handknattleikssambands Íslands neitaði að svara spurningum fréttamanns um styrktaraðila sambandsins á blaðamannafundi í morgun. Hann sagðist ekki ætla að tjá sig um málið.

Íslenski Atlantshafslaxinn nærri útrýmingarhættu
Íslenski Atlantshafslaxinn er nálægt því að vera í útrýmingarhættu, í fyrsta sinn, meðal annars vegna sjókvíaeldis. Þetta kemur fram á nýjum válista Alþjóðlegu Náttúruverndarsamtakanna sem gefinn var út í vikunni.