Stj.mál

Fréttamynd

Tvö í framboði til varaformanns

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sækjast bæði eftir varaformannsembættinu í Sjálfstæðisflokknum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sækist ekki eftir embættinu og telur mikilvægt að flokksmenn ruggi ekki bátnum.

Innlent
Fréttamynd

Þorgerður í varaformannsslag

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í næsta mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Umboðsmaður á leik

Embætti umboðsmanns alþingis ákveður brátt hvernig brugðist verður við skriflegum ábendingum þingflokksformanna stjórnarandstöðunnar um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra til að taka þátt í sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum til S-hópsins svonefnda.

Innlent
Fréttamynd

Kveð með söknuði

Ég kveð auðvitað stjórnmálin með miklum söknuði því þau hafa verið líf mitt og yndi," sagði Davíð Oddsson á blaðamannafundi í gær að loknum þingflokks- og miðstjórnarfundi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll.

Innlent
Fréttamynd

Davíð hættir í stjórnmálum

Davíð Oddsson hættir í pólitík og verður seðlabankastjóri. Ákvörðun hans, sem hann kynnti í dag, kom flatt upp á marga þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur ekki einungis áhrif á hagi Davíðs Oddssonar heldur hefur hún talsverðar tilfærslur í för með sér innan ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Endurskoði álögur á eldsneyti

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna skorar á fjármálaráðherra og fjárlaganefnd Alþingis að taka til endurskoðunar álögur ríkisins á eldsneyti í tilkynningu sem sambandið sendir frá sér í dag.

Innlent
Fréttamynd

Birgir Ísleifur lætur af störfum

Birgir Ísleifur Gunnarsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, hefur tilkynnt forsætisráðherra að hann óski að láta af störfum frá og með 1. október n.k. og hefur ráðherra fallist á beiðni hans. Birgir Ísleifur verður 70 ára í júlí á næsta ári og hefði orðið að láta af störfum í síðasta lagi í lok þess mánaðar.

Innlent
Fréttamynd

Hefur komið víða við

Davíð Oddsson utanríkisráðherra á að baki litríkan feril í stjórnmálum og óhætt að segja að um hann hafi gustað á stundum. En þótt stjórnmálin hafi verið hans helsta viðfangsefni hefur hann komið víða við.

Innlent
Fréttamynd

Blaðamannafundur klukkan 15.15

Þingflokkur og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hafa verið boðuð til fundar í Valhöll klukkan tvö. Í kjölfarið, klukkan 15.15, hyggst Davíð Oddsson svo halda blaðamannafund og samkvæmt heimildum fréttastofu mun hann tilkynna þar að hann gefi ekki aftur kost á sér sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bein útsending verður frá fundinum á Stöð 2, Bylgjunni, Talstöðinni og á VefTV Vísis.

Innlent
Fréttamynd

Davíð verður seðlabankastjóri

Davíð Odddsson tilkynnti fyrir stundu á blaðamannafundi í Valhöll að hann hygðist ekki gefa kost á sér í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. Þá tilkynnti hann einnig að hann hygðist láta af embætti utanríkisráðherra 27. september og taka við sem formaður bankastjórnar Seðlabankans af Birgi Ísleifi Gunnarssyni.

Innlent
Fréttamynd

Talaði mál sem fólk hafi skilið

Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslans, segir styrkleika Davíðs Oddssonar sem stjórnmálamanns hafa verið að hann hafi talað mál sem fólk hafi skilið, hann hafi verið beinskeyttur og harður við andstæðinga sína og náð til fólks á þann hátt. Hann hafi skotið fast þegar hann hafi verið gagnrýndur, og oft skotið í mark, sem skýri það kannski hversu lengi hann hafi verið við völd.

Innlent
Fréttamynd

Dreifi gulli rétt fyrir kosningar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að ríkisstjórnin sé að dreifa gullinu rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar, með ákvörðun sinni um hvernig söluandvirði Símans skuli varið.

Innlent
Fréttamynd

Hefði viljað hafa Davíð áfram

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, hefði frekar kosið að hafa Davíð Oddsson áfram í ríkisstjórn. Hann segir að stjórnin sé veikari eftir - fyrst um sinn.

Innlent
Fréttamynd

Klukka gengur á fleiri en skákmenn

Að loknum sameiginlegum miðstjórnar- og þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins í gær tilkynnti Davíð Oddsson þá ákvörðun sína að bjóða sig ekki fram til áframhaldandi formennsku í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi flokksins í næsta mánuði. Jafnframt lætur Davíð af embætti utanríkisráðherra á ríkisráðsfundi 27. september næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar mestar fyrir flokkinn

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrirhreyfingarinnar - græns framboðs, segir að pólitíkin á Íslandi muni breytast í kjölfar þess að Davíð Oddsson hverfur af vettvangi þeirra, en hann tilkynnti sem kunnugt er að hann hygðist standa upp úr stól utanríkisráðherra 27. september næstkomandi. Steingrímur segir að breytingarnar séu mestar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og það eigi eftir að koma í ljós hvernig sjálfstæðismönnum takist að vinna úr þeim.

Innlent
Fréttamynd

Geir Haarde næsti formaður?

Geir H. Haarde varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra tekur við embætti utanríkisráðherra af Davíð Oddssyni á ríkisráðsfundi 27. september næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Hættir sem formaður

Ráðherra og þingmenn Sjálfstæðisflokksins grunar að Davíð Oddsson tilkynni að hann hætti sem formaður flokksins síðar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Hyggjast vinna að flutningi flugs

Þverpólitísk samstaða hefur myndast á Suðurnesjum um stofnun félags sem mun beita sér fyrir því að samgöngubætur verði gerðar milli Straumsvíkur og Vatnsmýrinnar og að innanlandsflugið verði flutt til Keflavíkurflugvallar. Formenn Framsóknarflokks, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ ásamt fulltrúa óháðra hafa ákveðið að stofna félag til að vinna að þessu markmiði.

Innlent
Fréttamynd

Mikill tilfinningadagur

"Þetta er mikill tilfinningadagur," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. "Það vita allir hversu mikilhæfur og merkilegur stjórnmálamaður Davíð er." Þorgerður segir að mikill missir verði af Davíð. "Það sem Davíð hefur umfram okkur í stjórnmálum er að hann sér hluti fyrir fram sem við náum ekki alltaf að sjá."

Innlent
Fréttamynd

Afgreiðslu atvinnuleyfa flýtt

Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun hafa ákveðið í samráði við dómsmálaráðuneyti og félagsmálaráðuneyti að breyta verklagi við afgreiðslu umsókna frá ríkisborgurum hinna átta nýju aðildarríkja EES-samningsins. Samkvæmt því mun afgreiðsla umsóknanna taka mun skemmri tíma en áður og verður forgangur ríkisborgara þessara landa áréttaður að íslenskum vinnumarkaði umfram ríkisborgara utan EES-ríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Geir sækist eftir formannsembætti

Geir H. Haarde, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst bjóða sig fram til formannsembættis í Sjálfstæðisflokknum á komandi landsfundi sem fram fer 13. til 16. október. Aðspurður á blaðamannafundinum í dag sagði Davíð að augu manna beindust óhjákvæmilega að Geir án þess að hann lýsti yfir beinum stuðningi við hann.

Innlent
Fréttamynd

SUF fagnar ráðstöfun ríkisstjórnar

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna fagnar því að ríkisstjórnin skuli hafa ákveðið að hleypa söluandvirði Símans ekki út í hagkerfið með því að ráðstafa rúmlega 32 milljörðum króna til niðurgreiðslu erlendra skulda og leggja megnið af því sem eftir er af söluandvirðinu inn á reikning í Seðlabankanum.

Innlent
Fréttamynd

Farið of geyst með ráðstöfun fjár

Formaður Samfylkingarinnar telur ríkisstjórnina fara of geyst í að ráðstafa fénu, sem fékkst fyrir sölu Símans, fram í tímann. Hún telur farsælla að leggja peningana til hliðar og ávaxta þá fyrst um sinn í stað þess að ráðstafa fénu fram í tvö næstu kjörtímabil.

Innlent
Fréttamynd

Seðlabankinn á kolrangri leið

Seðlabankinn er á kolrangri leið í vaxtamálum, segir varaformaður fjárlaganefndar Alþingis. Húsnæðiskostnaður er aðal þensluhvatinn í efnahagslífinu, en þáttur stóriðjunnar er miklu minni en búist var við vegna fjölda erlendra starfsmanna. Lagt hefur verið til að fjölga þeim ennfrekar.

Innlent
Fréttamynd

Virði ákvörðun Davíðs

"Davíð Oddsson á mjög farsælan feril í stjórmálum. Hann hefur verið í forystu íslenskra stjórnmála um langt skeið og reynst bæði traustur og úrræðagóður," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Davíð jafnvel sá sterkasti

Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir að stærstu stundirnar í pólitískum ferli Davíðs Oddssonar hljóti að vera þegar hann var kjörinn borgarstjóri 1982 og formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra 1991.

Innlent
Fréttamynd

Kom mörgum í opna skjöldu

Ákvörðun Davíðs að láta af þingmennsku og ráðherraembætti kom mörgum helstu samstarfsmönnum hans í opna skjöldu sem vildu ekki trúa því þótt sagt hefði verið frá því í hádegisfréttum fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Búast við að flokkur mildist

Davíðs Oddssonar verður minnst sem eins af stórleikurunum á hinu pólitíska sviði, segja formenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Þeir búast við að Sjálfstæðisflokkurinn mildist eitthvað við brottför Davíðs.

Innlent
Fréttamynd

Skilur eftir sig stórt skarð

"Þetta eru heilmikil tímamót og ég óska Davíð Oddssyni og hans fjölskyldu alls góðs og fyrst og síðast góðrar heilsu og langra lífdaga," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna.

Innlent
Fréttamynd

Fundað um vaxta- og gengismál

Fundur efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um vaxta- og gengismál hófst klukkan hálfníu í morgun. Nú rétt fyrir fréttir stóð fundurinn enn yfir.

Innlent