
Samgöngur

Bílaflotinn við Landeyjahöfn þessa stundina er jafn mikill og alla Þjóðhátíð í fyrra
Sveinn segir stemmninguna hjá fólki hafa verið mjög góða og allt hafi gengið vel.

Þjóðhátíð í Eyjum: Vilja taka bát eins og Akranes á leigu eftir synjun Samgöngustofu
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum sendi í dag erindi til Samgöngustofu þar sem hann sækist eftir heimild fyrir siglingu báts, af sömu tegund og báturinn Akranes, milli lands og Eyja dagana í kringum Þjóðhátíð. Samgöngustofa hafði áður synjað beiðni um að fá Akranesið sjálft til að sigla leiðina umrædda daga.

Segja hugmynd um aukið millilandaflug í gegnum Reykjavíkurflugvöll byggða á veikum grunni
"Fyrst og fremst vildum við að fólk gæti tekið afstöðu með því að sjá þetta í staðinn fyrir að þurfa að fá einhverjar upplýsingar sem eru villandi,“ segir Björn Teitsson í samtali við Vísi.

Tillögur um stórframkvæmdir í vegamálum koma fram fyrir haustið
Samgönguráðherra segir brýnt að ráðast í mörg stór samgönguverkefni sem kosti tugi og jafnvel hundruð milljarða.

Gera ráð fyrir að lægstu sektir fyrir umferðarlagabrot verði 20 þúsund krónur
Sektir fyrir umferðarlagabrot munu hækka talsvert miðað við drög ríkissaksóknara að reglugerð um sektir við umferðarlagabrotum. Þar er gert ráð fyrir að breytt reglugerð hafi til hliðsjónar þróun verðlags.

Forsendur fyrir gjaldtöku í Hvalfjarðargöng verði ekki lengur fyrir hendi
Hins vegar kemur til greina að hefja gjaldtöku annars staðar.

Sektir vegna notkunar farsíma undir stýri hækka verulega
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vinnur nú að því að endurskoða sektir vegna farsímanotkunar undir stýri.

Borgarráð samþykkir samstarfssamning um lest til Keflavíkurflugvallar
Lögð verður áhersla á að tryggja hagkvæmni framkvæmdarinnar og að þróunarfélagið muni framkvæma nauðsynlegar rannsóknir til að undirbúa framkvæmdir. Einnig verða tengingar lestarstöðva við byggð, umferðarmannvirki og almenningssamgöngur skoðaðar sérstaklega.

Vilja tryggja fé til framkvæmda
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skoraði í síðustu viku á þingmenn kjördæmisins að tryggja að fjármagn fáist á fjárlögum ársins 2018 og árunum þar á eftir til að ljúka framkvæmdum við Reykjanesbraut innan bæjarmarkanna. Um sé að ræða brýnt öryggis- og hagsmunamál.

Keflavíkurflugvöllur opnar aftur flugbraut sem lokuð hefur verið í sex vikur
Eftir framkvæmdirnar er norður-suðurbrautin aftur komin í eðlilega lengd eða rúma 3000 metra. Næst á dagskrá er að malbika austur-vesturflugbrautina og verður hún lokuð fram að hausti.

Rútur á vegum erlendra fyrirtækja koma flestar vel út úr eftirliti
Oddur tekur fram að hann hafi enga samantekt hvort að munur sé á aksturs- og hvíldartíma á milli fyrirtækjanna.

Vilja laga aðstöðu farþega í Mjódd
Um fjórar milljónir farþega fara árlega um skiptistöðina í Mjódd og bar Sjálfstæðisflokkurinn upp tillögu á borgarráðsfundi um að bæta aðstöðu farþega.

Tólf prósent noti almenningssamgöngur
Til að unnt sé að byggja upp Borgarlínu þarf að þétta byggð og þrengja að einkabílnum. Fyrstu drög að legu línunnar voru kynnt á sameiginlegum fundi sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins í gær.

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu stefna á að byrja lagningu borgarlínu eftir tvö ár
Reiknað er með að borgarlína verði allt að 57 kílómetrar með stoppistöðum á sexhundruð metra til eins kílómetra millibili.

Rúmur milljarður á hvern kílómetra Borgarlínunnar
Í fréttatilkynningu segir að markmiðið með Borgarlínunni sé að auka vægi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Stutt verður á milli vagna og muni hraði í samgöngum aukast. Borgarlínan sé nauðsynleg þróun í samgöngum, sér í lag ef ferðavenjur fólks breytast ekki. Óbreytt ástand geti, með auknum fólksfjölda, aukið umferðaröngþveiti og minnkað pláss.

Hvað er Borgarlína?
Borgarlína er vinnuheiti yfir öflugt almenningssamgöngukerfi sem fyrirhugað er á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlínan keyrir í sérrými að öllu eða mestu leyti og er þannig ekki háð annarri umferð.

Leit að konum tefur skipun flugráðs sem lagðist í dvala fyrir 19 mánuðum
Fagráð um flugmál hefur ekki fundað í yfir nítján mánuði. Skipan nýs ráðs tefst af því að tilnefningar á konum vantar. Flugmenn harma að ráðið liggi í dróma og segja skjóta skökku við að ekki sé til opinber stefna stjórnvalda.

Kjördæmapólitík ræður vegabótum
Fjárveitingar til vegabóta eru í engu samræmi við slysatölfræði. Hægt væri að fækka alvarlegum umferðarslysum stórkostlega á stuttum tíma, væri það gert. Á samgönguáætlun eru vegabætur á tveimur af 20 hættulegustu vegköflunum.

Allra stundvísustu innriti sig á miðnætti
Fyrir sumarið 2017 verður nýtt átak kynnt á Keflavíkurflugvelli, Early bird, sem gerir farþegum kleift að innrita sig fyrir morgunflug frá miðnætti.

Sorglegt ef fjármunum sé eytt í úrelt lestakerfi
Borgarlína og fluglest eru úrelt þar sem sjálfakandi leigubílar munu taka yfir almenningssamgöngur, segir Frosti Sigurjónsson.

Samgönguráðherra segir gagnrýni byggða á villandi talnaleikfimi
Á þessu ári sé fjárveiting til nýframkvæmda á öllu landinu um ellefu milljarðar króna. Á sama tíma er starfshópurinn að vega og meta samgöngubætur sem eru af stærðargráðunni 100 milljarðar.

Samgönguráðherra: Uppbygging í pattstöðu næstu áratugi án gjaldtöku
Nauðsynlegar samgöngubætur út frá höfuðborgarsvæðinu eru svo dýrar að án gjaldtöku gætu liðið áratugir þangað til þær verða að veruleika, er mat samgönguráðherra. Hann nefnir 100 milljarða eða nífalt vegafé á fjárlögum.

Aflýstu fyrstu skóflustungu Dýrafjarðaganga vegna ófærðar
Í annað sinn sem veðrið setur strik í reikninginn.

Miklar tafir á umferð á Miklubraut: „Við gerum ráð fyrir því að umferð hérna verði komin aftur í eðlilegt horf í lok ágúst“
Miklar tafir voru á umferð á Miklubraut í dag vegna framkvæmda við gerð göngu- og hjólastígs sem hófust í morgun. Verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg segir að búast megi við töfum á umferð allt fram í ágúst.

Tillögur um legu borgarlínu kynntar í haust
Tillögur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um legu borgarlínu verða kynntar í haust.

Ráðherra segir nauðsynlegt að ríkið ræði sem fyrst við sveitarfélögin um Borgarlínu
Ekki er gert ráð fyrir aðkomu ríkisins að uppbyggingu Borgarlínunnar í fimm ára ríkisfjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Engin viðbrögð við aðvörun flugmanna
Formaður öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir háska geta hafa skapast ef þotan sem fór út af braut hefði gert það á háannatíma. Varaflugvellir séu í ólestri en stjórnvöld sinni ekki ábendingum.

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum í vikunni
Hvalfjarðargöngum verður lokað frá í vikunni, fjórar nætur í röð, vegna viðhalds.

Brátt slegið í gegn í Vaðlaheiðargöngum
Aðeins eru um 50 metrar þar til slegið verður í gegn í Vaðlaheiðargöngum.

Þessir vegir lenda í tíu milljarða niðurskurði samgönguáætlunar
Vegur um Teigsskóg, Dettifossvegur, hringvegurinn í Berufirði og ný brú á Hornafjarðarfljót eru meðal verkefna sem lenda undir hnífnum.