Eldgos og jarðhræringar
76 77 78 79 80 81 82 83 84 … 132 ›
Orðið lengsta gos aldarinnar: „Það má bara búast við öllu“ Eldgosið í Fagradalsfjalli varð í dag langlífasta eldgos á Íslandi á 21. öldinni en gosið hefur nú staðið í 181 dag. Innlent 16.9.2021 11:54
Varð vitni að því þegar allt fór af stað: „Byrjar að flæða alveg ótrúlegt magn“ Leiðsögumaður sem var við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall í dag varð vitni að því að þegar gífurlegt magn af hrauni braust út í miklum hraunstraumi. Svæðið var rýmt í morgun vegna hraunstraumsins en töluverður fjöldi fólks var við gosstöðvarnar í dag. Meðal annars mátti sjá ferðalanga klöngrast upp á hrauninu í beinni útsendingu í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Innlent 15.9.2021 19:48
Óvissustig vegna landriss í Öskju Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi Eystra lýsir yfir óvissustigi vegna landriss í Öskju. Síðustu vikur hafa mælst hraðar landbreytingar í Öskju, bæði á GPS-mælitæki staðsett þar og eins með nákvæmri úrvinnslu gervitunglamynda. Innlent 9.9.2021 16:47
Greinilegt að kvika streymi enn úr eldstöðinni Þó hálfgert goshlé hafi staðið í tæpa viku við Geldingadali er greinilegt að enn streymi einhver kvika upp á yfirborðið við eldstöðina. Ótímabært er að velta upp möguleikanum á að gosinu sé að ljúka. Innlent 8.9.2021 09:11
Gosið í einni lengstu pásunni hingað til Eldvirkni í Fagradalsfjalli hefur legið í láginni frá því á fimmtudaginn. Þetta er ein lengsta pása sem eldgosið hefur tekið sér frá því að það hófst í mars, en er ekki nauðsynlega til marks um að það sé að klárast. Innlent 5.9.2021 13:49
Fylgjast náið með Öskju og biðja ferðamenn að upplýsa um allt óvenjulegt Almannavarnir fylgjast náið með landrisi og jarðskjálftavirkni í Öskju og biðja ferðamenn að láta vita, taki þeir eftir einhverju óvenjulegu á svæðinu. Jarðeðlisfræðingur segir þetta geta markað upphafið að langtímaferli sem endar með gosi, og telur ástæðu til að taka ástandið alvarlega. Innlent 4.9.2021 19:00
Ástæða til að taka atburðarás við Öskju alvarlega Ástæða er til að taka landris í kringum Öskju alvarlega að mati jarðeðlisfræðings. Landið hefur risið um nokkra sentímetra eftir að hafa sigið stanslaust í 40 ár og vísbendingar eru um aukna jarðskjálftavirkni á svæðinu. Innlent 4.9.2021 12:22
Land rís við Öskju Mælingar Veðurstofu Íslands sýna að þensla hafi hafist í Öskju í byrjun ágúst 2021. Innlent 3.9.2021 23:58
Gosið hafi mannast Í gær mynduðust myndarlegur hraunfoss í hlíðinni ofan við Nátthaga, svo myndarlegur að hann sást frá Suðurstrandavegi. Eldfjallafræðingur telur að gosið hafi mannast. Innlent 27.8.2021 09:00
„Eins og standa við appelsínugulan Dettifoss“ Mögnuð sjón beið þeirra sem lögðu leið sína að eldgosinu við Fagradalsfjall í morgun. Hraunstraumurinn rann stríðum strauðum niður í Nátthaga. Innlent 26.8.2021 13:38
Flugferð með RAX: Upplifði algjört skilningsleysi þegar eldgosið hófst „Maður veit aldrei hvaða ljósmynd lifir, en það eru nokkrar sem lifa og eignast sjálfstætt líf,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari, sem hefur flogið af stað í öllum veðrum og vindum að mynda helstu viðburði Íslandssögunnar síðastliðin fjörutíu ár. Lífið 23.8.2021 15:30
Hraun rennur aftur í Nátthaga en langt í Suðurstrandarveg Hraun er nú farið að renna niður í Nátthaga úr eldstöðinni við Fagradalsfjall á ný. Þetta er í fyrsta skipti sem sjáanlegt rennsli er niður í dalinn síðan í lok júní. Hraunið á að renna yfir Suðurstrandarveg fljótlega eftir að Nátthaginn fyllist af hrauni en að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands eru margar vikur eða mánuðir í að það gerist, miðað við kraftinn í gosinu núna. Innlent 21.8.2021 19:14
Slegist um hjálpargögn á Haítí Vika er liðin frá því að öflugur jarðskjálfti skall á Haítí og hækkar tala látinna og slasaðra dag frá degi. Mikil ólga ríkir í landinu og dæmi um að örvæntingarfullir íbúar berjist um þær litlu neyðarbirgðir sem eru til skiptanna. Erlent 21.8.2021 12:08
Ný bílastæði stytta göngu á útsýnisstaði á eldgosið Þeir sem vilja ganga að eldstöðinni í Fagradalsfjalli hafa núna möguleika á að stytta gönguna með því að nýta sér ný bílastæði sem tekin hafa verið í notkun. Þá er í bígerð að lagfæra vinsælustu gönguleiðina upp á Langahrygg til að draga úr slysahættu. Innlent 20.8.2021 22:22
Allt gengið vel þrátt fyrir fimm mánaða eldgos í bakgarðinum Eftir fimm mánaða eldgos í útjaðri Grindavíkur segir formaður bæjarráðs það standa upp úr hvað allt hafi gengið vel, þrátt fyrir miklar hættur og gríðarlegt álag. Jarðvísindamaður segir það einkenna gosið hvað það sé stöðugt og máttlítið. Innlent 19.8.2021 22:42
Mikill reynslutími fyrir jarðvísindamenn og þjóðina alla Fimm mánuðir eru í dag liðnir frá því að eldgosið við Fagradalsfjall á Reykjanesi hófst. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir þessa mánuði hafa verið mikinn reynslutíma fyrir jarðvísindamenn og þjóðina alla. Innlent 19.8.2021 13:03
Fimm mánuðir frá upphafi eldgossins í Fagradalsfjalli Fimm mánuðir eru í dag frá upphafi eldgossins í Fagradalsfjalli á Reykjanesskaga. Samkvæmt nýjustu mælingum Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands er hraunið sem myndast hefur í gosinu orðið 119 milljónir rúmmetra að rúmmáli og 4,4 ferkílómetrar að flatarmáli. Innlent 19.8.2021 07:23
Skjálfti við Hellisheiðarvirkjun Jarðskjálfti, 3,1 að stærð varð í kvöld rétt fyrir klukkan ellefu rétt tæpa þrjá kílómetra norður af Hellisheiðarvirkjun. Innlent 16.8.2021 23:27
Nýjasta gosopið í góðum gír Þótt það sé lítið er góður gangur í nýjasta gosopinu í eldgosinu við Fagradalsfjalli, líkt og sjá má í beinni vefútsendingu Vísis frá gosstöðvunum. Innlent 16.8.2021 22:40
Nokkuð ljóst að sjálfstætt gosop hafi myndast Nokkuð ljóst er að sjálfstætt gosop hafi myndast rétt við megingíg eldgossins við Fagradalsfjall. Gosopið sést glögglega á vefmyndavélum. Innlent 16.8.2021 18:21
Mannfall talið verulegt eftir meiri háttar skjálfta á Haítí Jarðskjálfti af stærðinni 7,2 reið yfir Haítí í morgun, með þeim afleiðingum að verulegur fjöldi fólks lést, að því er bandarísk yfirvöld telja. Erlent 14.8.2021 14:45
Eldgosið í góðum gír nú í morgun Eldgosið í Fagradalsfjalli hefur verið í góðum gír núna í morgun. Sjá má glóandi hraunið bubbla í gígnum og renna í stríðum straumum út frá honum. Innlent 12.8.2021 08:37
Margir vilji „gera eitthvað töff og kúl sem raunverulega er heimskulegt“ Enn berast fréttir af því að ferðamenn við gosstöðvarnar á Reykjanesi ani út á nýstorknað hraun, þvert á tilmæli lögregluyfirvalda og björgunarsveita. Slíkt getur verið lífshættulegt, þar sem hraunið getur gefið eftir og undir niðri getur leynst töluvert mýkra, heitara og hættulegra hraun. Innlent 10.8.2021 22:36
Gosið gjörbreytist með lækkandi sól Nokkur kraftur virðist vera í eldgosinu í Fagradalsfjalli um þessar mundir. Þegar þetta er skrifað er tekið að rökkva og því sést eldhraunið enn betur en í björtu, hvort sem það er á staðnum sjálfum eða með hjálp vefmyndavélar Vísis. Innlent 10.8.2021 22:28
Nýjar sprungur á Gónhóli við eldstöðvarnar Nýjar sprungur sjást nú í Gónhóli nálægt eldstöðvunum við Fagradalsfjall og virðast þær hafa myndast á síðastliðnum tveimur vikum. Ekki er hægt að útiloka að sprungumyndanirnar séu til marks um að kvika sé að færast nær yfirborði við Gónhól, þar sem þyrlum hefur meðal annars verið lent með farþega. Innlent 10.8.2021 15:24
Fjöldi gekk langt inn á hraunið til að komast að rauðglóandi hrauni Töluverður fjöldi fólks lagði leið sína upp á nýtt hraunið við eldgosið í Fagradalsfjalli í gær, til þess að komast nær rauðglóandi hrauni. Ítrekað hefur verið varað við slíku athæfi. Innlent 10.8.2021 10:22
Kraumandi kvika og stríður hraunelgur Magnað myndband af kraumandi kviku og stríðum hraunelg náðist þegar flogið var yfir eldgosið í Fagradalsfjalli í gær. „Gígurinn er barmafullur af kviku og byrjað að flæða yfir barmana,“ segir á Facebook-síðu Eldfjallafræði og náttúruvárhóp Háskóla Íslands. Innlent 10.8.2021 06:22
Ekki nýtt gosop heldur gat í gígbarminum Svo virtist sem nýtt gosop hefði verið að taka á sig mynd í eldgosinu í Fagradalsfalli í dag, en svo var ekki. Innlent 9.8.2021 19:29
Nýtt gosop að myndast: Hraunið gæti mögulega runnið niður í Geldingadali Svo virðist sem nýtt gosop sé að taka á sig mynd í eldgosinu í Fagradalsfjalli en það sést vel á vefmyndavélum. Of snemmt er að segja til um hvort um er að ræða nýjan gíg. Innlent 9.8.2021 12:21
Engin merki um neðansjávargos Áhöfn varðskipsins Þórs sá enga bólstra í hafinu sunnan við Reykjanes eftir að hafa farið í könnunarleiðangur þangað í kvöld. Innlent 8.8.2021 00:06