
Ferðaþjónusta

Æ algengara að Íslendingar fari út að borða á jólunum
Formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir töluvert minna um bókanir í desembermánuði í ár en í fyrra. Þá hafi færst í aukana að Íslendingar fari út að borða á jólunum.

Gera ráð fyrir 7,6 prósent fækkun farþega á næsta ári
Heildarfjöldi komufararfarþega verði tæpar 2,6 milljónir sem er 1,4% samdráttur frá í fyrra.

Vilja að aðgerðahópurinn vinni hratt
Samgönguráðherra og ferðamálaráðherra hafa undirritað viljayfirlýsingu um frekari uppbyggingu á Akureyrarflugvelli. Aðgerðahópur hefur verið stofnaður sem á að vinna tillögur að uppbyggingu.

Borga tíu milljarða fyrir Icelandair hótelin
Gert er ráð fyrir því að gengið verði frá sölu Icelandair Group á Icelandair Hotels til dótturfélags malasíska félagsins Berjaya Land Berhad í lok febrúar árið 2020 en ekki árslok 2019 líkt og áður var stefnt að.

Fjöldi Íslendinga í sárum eftir skyndilega lokun íslenskrar lúxusferðaþjónustu
Ferðaskrifstofuleyfi Farvel, sem sérhæft hefur sig í lúxusferðalögum á borð við safaríferðir til Afríku og mótorhjólaferðir um Víetnma, hefur verið fellt úr gildi þar sem fyrirtækið hefur ekki skilað inn tryggingu í samræmi við aukin umsvif félagsins.

Vilja leyfa ferðamönnum að keyra um á nagladekkjum níu mánuði á ári
Samtök ferðaþjónustunnar vilja rýmka heimild til að nota nagladekk á bílaleigubílum af öryggissjónarmiðum. Snýr tillagan að því að reglugerð verði breytt og negldir hjólbarðar verði leyfðir á bílaleigubílum frá 1. september til 31. maí eða þrjá og hálfan mánuð umfram aðra bíla.

Nýr ferðaþjónusturisi verður til
Ferðaþjónustufyrirtækin Arctic Adventures og Into the Glacier hyggjast sameinast og stefna á skráningu á hlutabréfamarkað innan tveggja ára.

Forstjóri Icelandair segir að fljótlega þurfi að ákveða arftaka Boeing 757
Icelandair stefnir að ákvörðun um þotukaup fljótlega á nýju ári. Einn möguleikinn sem félagið skoðar er að skipta alfarið yfir í Airbus-þotur.

Suður-kóreskar YouTube stjörnur fóru mikinn á Íslandi
Suður-kóreskar YouTube stjörnur sem kalla sig 채널십오야 voru hér á landi í október og framleiddu fjölda myndbanda fyrir rás sína.

Skipa aðgerðarhóp um Akureyrarflugvöll
Sigurður Ingi Jóhansson samgönguráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra munu skipa aðgerðahóp sem falið verður að setja fram tillögur um hvernig megi byggja Akureyrarflugvöll upp sem aðra gátt fyrir ferðamenn inn í landið.

Kántrístjarna klifraði upp snarbratta hlíð vegna ótta við að verða gómaður á Íslandi
Bandaríska kántrístjarnan Kip Moore segir að ógnvænlegustu aðstæður sem hann hafi komið sér í hafi verið á ferð sinni um Ísland árið 2017. Hann og félagi hans óðu þá ískalda á og klifruðu upp snarbratta hlíð í stað þess að vera gómaðir af

Leggja til nýja veglínu um Djúpuvík og Veiðileysuháls
Vegagerðin hefur kynnt matsáætlun vegna nýs vegar um Veiðileysuháls í Árneshreppi. Í samgönguáætlun er búið að marka 750 milljónir króna til verksins, með 300 milljóna króna byrjunarframlagi á árinu 2024.

Reynslubolti að norðan og austan verður sölustjóri hjá Fly over Iceland
Birna Lind Björnsdóttir hefur verið ráðin sölustjóri FlyOver Iceland sem býður upp á ferðalag yfir náttúru Íslands í húsakynnum fyrirtækisins úti á Granda.

150 þúsund króna aukakostnaður við dagsferð í Jökulsárlón
Erlendur ferðamaður nokkur steig bensínið í botn á Suðurlandsvegi í gærmorgun á leið sinni að hinni vinsælu perlu Jökulsárlóni.

Helmingi fleiri ferðamenn frá Asíu
Asískum ferðamönnum á Íslandi fjölgaði um 53 prósent á milli ára, sé nýliðinn nóvembermánuður borinn saman við sama mánuð í fyrra.

Ellen DeGeneres gaf 300 flugmiða með Icelandair í jólaþætti sínum
Í gærkvöldi gaf Ellen DeGeneres 150 áhorfendum í sérstökum jólaþætti sínum, Ellen's Greatest Night of Giveaways, flugmiða með Icelandair til Íslands fyrir tvo, gistingu í fimm daga á Icelandair hótelum og ferð í Bláa Lónið.

Sóknarfæri í ferðaþjónustu
Í kjölfarið á falli WOW air hefur meira borið á umræðunni um verðmæti ferðamanna en oft áður.

Stækka gamla sjónvarpshúsið og breyta í Hyatt hótel
Hyatt og Reitir gera samkomulag um opnun fyrsta Hyatt hótelsins á Norðurlöndum

Höfum ekki flugviskubit - flugferðir vernda náttúruna
Um 2,5% af losun koltvísýrings af mannavöldum er frá flugsamgöngum. Vissulega munar um minna ef fólk dregur verulega úr flugferðum og tekst þannig á við „flugviskubitið.“

Eigandi Icelandair Hotels vill reisa lúxushótel í hjarta Nuuk
Aðaleigandi Icelandair-Hotels, malasíski auðkýfingurinn Vincent Tan, hefur kynnt áform um að reisa lúxushótel í hjarta Nuuk, höfuðstaðar Grænlands.

Féll fyrir Íslandi á þriðja degi brúðkaupsferðarinnar
Það hefur verið algjör draumur að búa hér, segir Jeannie Riley en hún seldi aleiguna og flutti til Íslands árið 2015. Nú aðstoðar Jeannie ferðamenn við að skipuleggja Íslandsferðir sínar.

Mongólíutjaldið þolir allt sem íslenska veðrið býður upp á
Í hlíðum Vaðlaheiðar í grennd við Akureyri stendur tjald sem kom alla leið frá Mongólíu. Þar bjóða hjón ferðamönnum upp á gistingu sem þau segja vera eins og að vera kominn aftur í móðurkvið.

Lagt til að Goðafoss verði friðlýstur
Umhverfisstofnun hefur lagt fram tillögu að friðlýsingu Goðafoss í Þingeyjarsveit sem náttúruvættis.

Aðflug að Hvassahrauni færi hvergi yfir þéttbýli
Forseti bæjarstjórnar Voga segir að flugvöllur í Hvassahrauni yrði lyftistöng fyrir svæðið og hvetur Suðurnesjamenn til að taka hugmyndinni fagnandi.

Aðstoðuðu körfuboltakempu við að bjarga bát og fá björgunarlaun
Ferðaþjónustufyrirtækið Drangeyjarferðir ehf. þarf að greiða Útgerðarfélagi Skagfirðinga 2,5 milljónir í björgunarlaun eftir að bátnum Hafsól SK-96 var bjargað frá altjóni við Drangey á síðasta ári. Helgi Rafn Viggósson, fyrirliði körfuknattleiksliðs Tindastóls og starfsmaður Drangeyjarferða, lék lykilhlutverk í björgun bátsins ásamt áhöfn útgerðarfélagsins.

Hvassahraun sagt betra vegna plássleysis á Keflavíkurflugvelli
Takmarkaðir stækkunarmöguleikar á Keflavíkurflugvelli, sé horft til lengri framtíðar, og flugstöð sem hentar illa tengiflugi, eru meðal ástæðna þess að Hvassahraun er sagt betri framtíðarkostur.

Icelandair lagt í mikla vinnu við að skoða Hvassahraun
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að þegar horft sé áratugi fram í tímann sé það engin spurning að hagkvæmt sé fyrir þjóðfélagið og ferðaþjónustuna að hafa einn sameiginlegan innanlands- og millilandaflugvöll.

Mikilvægi tungumála í atvinnulífinu
Fyrr á þessu ári kom út skýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar um formlegt nám í ferðaþjónustu.

Svona flugvöll vilja ráðamenn Icelandair sjá í Hvassahrauni
Ráðamenn Icelandair vilja að Hvassahraun verði áfram skoðað sem framtíðarstaðsetning fyrir millilandaflug, - hagkvæmt verði að hafa sameiginlegan völl fyrir innanlands- og millilandaflug.

Liv nýr stjórnarformaður Keahótela
Liv Bergþórsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku í stjórn Keahótela.