Erlent
220 221 222 223 224 225 226 227 228 … 334 ›
Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist. Erlent 30.9.2022 11:24
Putin með sjónarspil í tilefni ólöglegrar innlimunar Í hádeginu fer fram athöfn í Kreml þar sem Vladimir Putin forseti Rússlands undirritar formlega yfirlýsingu um innlimun fjögurra héraða í Úkraínu í rússneska sambandslýðveldið. Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin muni aldrei viðurkenna þennan gjörning. Erlent 30.9.2022 11:24
NASA og SpaceX vilja lengja líftíma Hubble Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX hafa gert samkomulag um tilraunaverkefni sem snýr að því að hækka mögulega sporbraut geimsjónaukans Hubble og lengja líftíma hans. Það voru forsvarsmenn SpaceX og Polaris Program sem leituðu til NASA og lögðu til að möguleiki þess að þjónusta Hubble á þennan hátt, og mögulega aðra gervihnetti, yrði rannsakaður. Erlent 30.9.2022 10:27
Lekinn í Eystrasalti lítill hluti af losun manna á metani Þrátt fyrir að þúsundir tonna af jarðgasi velli út um göt á Nord Stream-gasleiðslunum tveimur er lekinn lítill í samanburði við aðra losun manna á metani. Áætlað er að ef allt gasið í leiðslunum læki út í andrúmsloftið næmi það um 0,1% af heildarlosun á metani í heiminum. Erlent 30.9.2022 09:35
Að minnsta kosti nítján látnir eftir árás á skóla í Kabúl Að minnsta kosti nítján eru látnir og á þriðja tug slasaðir eftir að sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á Kajj námsmiðstöðina í höfuðborg Afganistan í morgun. Nemendur voru í prófi þegar sprengingin varð en á svæðinu en enginn hefur tekið ábyrgð á árásinni enn sem komið er. Erlent 30.9.2022 08:05
23 látnir og 28 særðir eftir árás í Zaporizhzhia Að minnsta kosti 23 eru látnir og 28 særðir eftir árás á bílalest almennra borgara í Zaporizhzhia. Úkraínumenn segja Rússa hafa staðið að árásinni en Rússar segja Úkraínumenn ábyrga. Erlent 30.9.2022 07:50
Fjöldi látinna í Flórída á reiki eftir fellibylinn Ian Fellibylurinn Ian sem gekk á land í Flórída á miðvikudag stefnir nú á Suður-Karólínu en fjölmargir íbúar flúðu úr stærstu borg ríkisins, Charleston, í gær. Ríkisstjóri Flórída segir ljóst að fellibylurinn, sem er einn sá stærsti í sögu Bandaríkjanna, hafi verið mannskæður en verið er að staðfesta fjölda látinna. Erlent 30.9.2022 07:30
Ian gæti orðið sá mannskæðasti í sögu Flórída Fellibylurinn Ian, sem gekk á land í Flórída í Bandaríkjunum í gær, hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar og óttast er að hann sé mannskæðasti fellibylur í sögu Flórída. Íbúðarhús eru víða gjörónýt, þak fauk af spítala, vegir skemmdust og brýr hrundu. Erlent 29.9.2022 20:10
Liz Truss gefur ekkert eftir varðandi skattalækkanir Liz Truss forsætisráðherra Bretlands varði í dag nýlegar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem meðal annars fela í sér miklar skattalækkanir á hina efnameiri. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við stefnunni og áhrifum hennar á alþjóðlega markaði og hvatti bresku stjórnina í vikunni til að draga þær til baka. Erlent 29.9.2022 19:41
Hafi beðið Taívan um milljarð dala til þess að tryggja bandalagið Forseti Paragvæ, Mario Abdo Benítez er sagður hafa beðið taívönsk stjórnvöld um að fjárfesta í bandalagi ríkjanna tveggja fyrir einn milljarð dollara eða rúmlega 147 milljarða króna. Fjárfestinguna er hann sagður biðja um til þess að fá hvata til að láta ekki undan þrýstingi og gerast bandamaður Kína. Erlent 29.9.2022 15:20
Sást til rússneskra herskipa nærri lekastaðnum í vikunni Evrópskar öryggisstofnanir eru sagðar hafa fylgst með ferðum rússneskra herskipa nærri staðnum þar sem lekar komu á Nord Stream-gasleiðslurnar í Eystrasalti í vikunni. Atlantshafsbandalagið telur að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Erlent 29.9.2022 14:04
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar veikja varnir sínar í vestri vegna innrásarinnar Úkraínskir hermenn eru sagðir nærri því að umkringja stóran hóp rússneskra hermanna í bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Þorp víðs vegar um bæinn hafa verið frelsuð og er útlit fyrir að Rússar eigi einungis eina undankomuleið frá Lyman. Erlent 29.9.2022 14:00
Drottningin lést úr elli Elísabet II. Bretlandsdrottning lést úr elli, 96 ára að aldri. Dánarvottorð hennar var gefið út í dag. Erlent 29.9.2022 13:35
Fellibylurinn í myndskeiðum: Ian skilur eftir sig mikla eyðileggingu í Flórída Útlit er fyrir að fellibylurinn Ian, sem gekk á land í Flórída í Bandaríkjunum í gær, hafi valdið gífurlegum skemmdum í sjávarbyggðum þar. Myndbönd frá Flórída sem tekin voru í gær og í nótt sýna að sjór gekk langt inn á land og olli mikilli eyðileggingu. Erlent 29.9.2022 11:38
Ætlar að innlima héruðin á morgun Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlar að skrifa undir innlimun fjögurra héraða Úkraínu á morgun, föstudag. Þetta tilkynnti Kreml nú fyrir skömmu og sagði að klukkan þrjú á morgun, að staðartíma, myndi Pútín skrifa undir innlimun héraðanna í rússneska sambandsríkið og halda ræðu í kjölfarið. Erlent 29.9.2022 10:13
Tvær milljónir án rafmagns og fólk innlyksa eftir Ian Fjöldi fólks er innlyksa í húsum sínum vegna flóða og tvær milljónir manna eru án rafmagns á suðvestanverðum Flórídaskaga í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Ian gekk þar yfir í nótt. Fellibylurinn er einn sá öflugasti sem gengið hefur á land í Bandaríkjunum. Erlent 29.9.2022 09:05
Svíar fundu fjórða lekann og Rússar benda á Bandaríkjamenn Sænska landhelgisgæslan hefur fundið fjórða gaslekann á Nord Stream gasleiðslunum, samkvæmt Svenska Dagbladet. Blaðið hefur eftir talsmanni landhelgisgæslunnar að tveir af lekunum fjórum séu í sænskri lögsögu en hinir tveir eru í danskri lögsögu. Erlent 29.9.2022 07:30
Ian muni valda gríðarlegri eyðileggingu í Flórída Fellibylurinn Ian hefur hefur valdið gríðarlegum flóðum á vesturströnd Flórída síðan hann gekk á land í kvöld, klukkan sjö að íslenskum tíma. Ríkisstjóri segir viðbúið að fellibylurinn muni skilja eftir sig gríðarlegar rústir. Bylurinn hefur þegar valdið tveimur dauðsföllum á Kúbu og rafmagnsleysi um alla eyjuna. Erlent 28.9.2022 23:40
„Þau hafa gott af þessu“ Margrét Danadrottning segir að barnabörn hennar sem svipt voru titlum sínum fyrr í dag hafi gott af því. Börn Jóakims Prins munu í framtíðinni ekki bera titlana prinsar og prinsessur en fá enn að vera greifar og greifynjur af Monpezat. Erlent 28.9.2022 19:20
Leppstjórar biðja Pútín um innlimun Leppstjórar Rússlands í Luhansk- og Donetsk-héruðum hafa beðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að lýsa yfir innlimun héraðanna og annarra í rússneska sambandsríkið. Búist er við því að Pútín muni lýsa yfir innlimuninni á komandi dögum. Erlent 28.9.2022 14:46
Telja gasleiðslurnar geta skemmst varanlega Óttast er að rússnesku gasleiðslurnar tvær í Eystrasalti kunni að skemmast varanlega eftir skemmdarverk sem virðast hafa verið unnin á þeim. Þýski sjóherinn ætlar að taka þátt í rannsókn á lekanum. Erlent 28.9.2022 14:36
Börn Jóakims prins svipt titlum sínum Margrét Þórhildur Danadrottning hefur ákveðið að börn Jóakims prins beri í framtíðinni ekki titlana prins og prinsessur. Breytingin tekur gildi þann 1. janúar 2023. Breytingin nær bæði til barnanna tveggja sem hann á með fyrrverandi eiginkonu sinni Alexöndru greyfynju og þeirra tveggja sem hann á með Marie prinsessu, núverandi eiginkonu. Erlent 28.9.2022 14:09
Milljónum sagt að flýja undan Ian sem nálgast fimmta stigið Fellibylurinn Ian stefnir hraðbyri á Flórída í Bandaríkjunum eftir að hafa valdið mikilli eyðileggingu og dauðsföllum á Kúbu. Heitur sjór á Mexíkóflóa hefur gefið fellibylnum aukinn kraft og er hann skilgreindur sem fjórða stigs fellibylur og sagður nálægt fimmta stiginu. Erlent 28.9.2022 12:21
Siðgæðislögreglan sögð horfin af strætum og torgum Ekkert hefur sést til fulltrúa siðgæðislögreglu sem á að fylgjast með klæðaburði kvenna á strætum Teheran í Íran undanfarna daga. Raddir um að slaka ætti á ströngum reglum um klæðaburð kvenna hafa orðið háværari eftir dauða ungrar konu í haldi siðgæðislögreglunnar fyrr í þessum mánuði. Erlent 28.9.2022 12:20
Skaut fast á Repúblikana fyrir fylgispekt þeirra við Trump Dómari fór hörðum orðum um Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og leiðtoga Repúblikanaflokksins fyrir ítrekaðar lygar þeirra um kosningasvik í Bandaríkjunum. Hún sagði Trump hafa gert háttsetta Repúblikana lafandi hrædda við að missa völd sín svo þeir þorðu ekki að fara gegn honum. Erlent 28.9.2022 11:11
Óttast loftslagsstórslys vegna gaslekans Losun gróðurhúsalofttegunda frá lekanum í Nord Stream-gasleiðslunum tveimur í Eystrasalti gæti jafnast á við árslosun heillrar borgar. Vísindamenn óttast loftslagshamfarir en losun vegna lekans gæti í versta falli orðið umtalsvert meiri en árslosun Íslands. Erlent 28.9.2022 10:54
Fundu lík Hilaree Nelson í hlíðum Manaslu Leitarteymi í Nepal hefur fundið lík bandarísku útivistarkonunnar Hilaree Nelson í hlíðum fjallsins Manaslu í Himalayja-fjöllunum. BBC greinir frá. Erlent 28.9.2022 10:17
Hvetja bresk stjórnvöld til að endurskoða skattalækkunaráform Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur bresku ríkisstjórnina til að endurskoða áform sín um stórfelldar skattalækkanir. Hagfræðingar sjóðsins vara við því að aðgerðin verði eldsneyti á frekara verðbólgubál og magni upp ójöfnuð. Erlent 28.9.2022 08:54
Rafmagnslaust á Kúbu vegna fellibylsins Ian Rafmagn er farið af á allri Kúbu eftir að fellibylurinn Ian gekk yfir vesturhluta eyjarinnar í gær og í nótt. Erlent 28.9.2022 07:07
Segja 99,23 prósent hafa stutt tillögu um að heyra undir Rússland Talsmenn leppstjórna Rússa í fjórum úkranskum hérðuðum hafa lýst því yfir að yfirgnæfandi meirihluti hafi greitt atkvæði með því að heyra undir Rússland, í svokölluðum „þjóðaratkvæðagreiðslum“ sem boðað var til og haldnar í gær. Erlent 28.9.2022 06:27
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent