Erlent
261 262 263 264 265 266 267 268 269 … 334 ›
Baldwin ræðir við Allen í beinni á Instagram Leikarinn Alec Baldwin hefur greint frá því að hann muni taka viðtal við leikstjórann Woody Allen á morgun, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Instagram. Erlent 27.6.2022 11:17
Nafngreina mennina sem létust í árásinni í Osló Lögregla í norsku höfuðborginni Osló hefur birt nöfn mannanna tveggja sem létust í skotárásinni aðfararnótt laugardagsins. Mennirnir sem létust hétu Kaare Arvid Hesvik, sextíu ára að aldri, og Jon Erik Isachsen, 54 ára. Erlent 27.6.2022 08:52
Vaktin: Loftárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk Serhai Haidai, ríkisstjóri Luhansk, hefur hvatt íbúa Lysychansk til að yfirgefa borgina og segir ástandið afar erfitt. „Bjargið sjálfum ykkur og ástvinum. Passið upp á börnin. Þið getið verið fullviss um að það verður séð um ykkur í öruggum borgum Úkraínu.“ Erlent 27.6.2022 08:31
Nýtt bóluefni gefur vonir um útrýmingu malaríu fyrir árið 2040 Miklar vonir eru bundnar við nýtt bóluefni gegn malaríu en sjúkdómurinn er algengasta dánarorsök fimm ára og yngri í Afríku. 600 þúsund manns létust úr malaríu í Afríku árið 2020 en nýtt bóluefni er talið geta lækkað dánartíðnina um allt að 75 prósent. Erlent 27.6.2022 08:06
Andersson, Erdogan og Niinistö funda á morgun Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Sauli Niinistö Finnlandsforseti og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti munu hittast á fundi á morgun til að ræða umsóknir Svíþjóðar og Finnlands að NATO. Erlent 27.6.2022 07:36
Íbúar í Tókýó hvattir til að draga úr orkunotkun vegna hitabylgju Yfirvöld í Japan hvetja íbúa stórborgarinnar Tókýó til að draga úr rafmagnsnotkun í dag en mikil hitabylgja gengur nú yfir svæðið sem hefur orsakað mikinn orkuskort. Erlent 27.6.2022 07:25
Mörg stórfyrirtæki hyggjast aðstoða starfsmenn Mörg stórfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa lýst því yfir að þau muni greiða fyrir ferðalög starfsmanna sinna sem neyðast til að leita til annara ríkja til að gangast undir þungunarrof, eftir að hæstiréttur landsins snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade. Erlent 27.6.2022 07:10
Einn í lífshættu eftir að hús sprakk Einbýlishús sprakk í Birmingham á Englandi í nótt með þeim afleiðingum að karlmaður liggur á spítala í lífshættu. Erlent 26.6.2022 23:57
Minnst fjögur látin eftir að stúka hrundi á nautaati Minnst fjögur létust og hundruð eru slösuð eftir að áhorfendastúka hrundi í El Espinal í Kólumbíu þegar nautaat fór fram í dag. Erlent 26.6.2022 21:03
„Síðan vöknum við við sprengingar klukkan sex í morgun“ Einn lét lífið eftir að Rússar vörpuðu í morgun sprengjum á að minnsta kosti tvær íbúðablokkir í Kænugarði höfuðborg Úkraínu. Íslendingur sem býr í borginni segir óþægilegt að vakna upp við sprengingar á ný. Hann er orðinn langþreyttur á stríðinu sem hann segir verða blóðugra með hverjum deginum. Erlent 26.6.2022 15:29
Maxwell sögð á sjálfsvígsvakt í fangelsi Lögmaður Ghislaine Maxwell, sem var sakfelld fyrir aðild að glæpum Jeffreys Epstein gegn konum, segir að hún sé sjálfsvígsvakt í fangelsinu í Brooklyn þar sem henni er haldið. Til stendur að ákvarða refsingu hennar á þriðjudag en lögmaðurinn segir að það kunni að frestast. Erlent 26.6.2022 14:40
Fíllinn Happy telst ekki gæddur mannlegum eiginleikum Hinn fimmtugi fíll Happy þarf áfram að dvelja í dýragarðinum í Bronx í New York eftir að æðsti dómstóll borgarinnar hafnaði kröfu dýravernarsamtaka um að honum yrði sleppt á þeim forsendum að Happy deildi vitrænum eiginleikum með mannfólkinu, eins og það var orðað í kröfugerðinnni. Erlent 26.6.2022 14:31
Neitar að láta yfirheyra sig nema lögregla birti upptökuna Maðurinn sem er ákærður fyrir hryðjuverk í miðborg Oslóar í fyrrinótt hefur neitað að láta yfirheyra sig nema lögregla birti upptöku af yfirheyrslunni í heild sinni opinberlega. Lögmaður hans segir hann óttast að lögreglan snúi út úr orðum sínum. Erlent 26.6.2022 13:18
Búa sig undir slag um þungunarrofspillu Hvíta húsið ætlar að reyna að koma í veg fyrir að ríki geti bannað svonefnda þungunarrofspillu í kjölfar Hæstaréttardóms um að konur eigi ekki rétt til þungunarrofs. Búast má við að tekist verði um málið fyrir dómstólum. Erlent 26.6.2022 11:24
Tuttugu og tveir fundust látnir en lítið er vitað um orsök Tuttugu og tveir einstaklingar á aldrinum 18 til 20 ára fundust látnir á vinsælli krá í borginni Austur London í Suður-Afríku. Erlent 26.6.2022 10:49
Var í sambandi við öfgamann sem boðaði dráp á samkynhneigðum Maðurinn sem skaut tvo til bana og særði fleiri fyrir utan hinsegin bar í Osló í fyrrinótt var í sambandi við þekktan íslamskan öfgamann í Noregi. Sá boðaði fyrir skömmu dráp á samkynhneigðum á samfélagsmiðlum. Erlent 26.6.2022 10:02
Loðfílskálfur fannst í sífrera í Júkon Námumenn sem voru við störf í Júkon í Kanada fundu fornleifar loðfílskálfs þegar þeir grófu í gegnum sífrera nú á þriðjudag. Loðfílskálfurinn er talinn hafa frosið á ísöld fyrir meira en 30.000 árum síðan. Erlent 26.6.2022 09:52
Karl sagður hafa tekið við milljónum frá Katar Karl Bretaprins er sagður hafa tekið við milljónum evra í reiðufé á fundum sínum með fyrrverandi forsætisráðherra Katar. Fulltrúar konungsfjölskyldunnar fullyrða að féð hafi strax runnið til góðgerðasamtaka prinsins. Erlent 26.6.2022 08:19
Sprengdu íbúðarblokkir í Kænugarði Rússar vörpuðu sprengum á að minnsta kosti tvær íbúðarblokkir í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, eldsnemma í morgun. Borgarstjóri Kænugarðs segir að sjö ára gamalli stúlku hafi verið bjargað úr rústunum. Erlent 26.6.2022 07:53
Ekki þurfi að lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna apabólu Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að ekki þurfi að lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna faraldurs apabólu. Það þurfi hins vegar að fylgjast grannt með faraldrinum sem hefur brotist út í meira en 50 löndum. Erlent 25.6.2022 22:54
Fimm mánaða stúlka skotin til bana í Chicago Fimm mánaða stúlka var skotin til bana í aftursæti bíls í South Shore-hverfi Chicago síðdegis í gær. Stúlkan var flutt á spítala eftir að hafa fengið skot í höfuðið og lést hún þar. Maður á fimmtugsaldri hlaut einnig áverka eftir að byssuskot hæfði hann nærri auga. Erlent 25.6.2022 21:14
Biden samþykkir herta byssulöggjöf Joe Biden Bandaríkjaforseti skrifaði í dag undir lagafrumvarp sem takmarkar rétt Bandaríkjamanna til byssukaupa. Frumvarpið felur í sér hertar bakgrunnsathuganir, takmarkar rétt þeirra sem hafa verið dæmdir fyrir heimilisofbeldi til vopnakaupa og auðveldar ríkjum að fjarlægja byssur af fólki sem er talið hættulegt. Erlent 25.6.2022 18:05
Lysychansk síðasta vígi Úkraínumanna í Luhansk Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Nú er Lysychansk eina borgin í Luhansk sem Úkraínumenn ráða enn yfir. Erlent 25.6.2022 16:53
Áminning um að standa þurfi vaktina á Íslandi Þungunarrof hefur þegar verið bannað í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna eftir að hæstiréttur felldi úr gildi rétt til þess í gær. Þingmaður segir dóminn stórhættulegan og sýna að standa þurfi vörð um þessi réttindi hér heima á Íslandi. Erlent 25.6.2022 15:01
Herða reglur um rafskútur sem sagðar eru gera Róm að villta vestrinu Borgaryfirvöld í Róm á Ítalíu ætla að herða reglur um notkun rafskúta, hámarkshraði verður lækkaður og notkun verður bönnuð börnum. Erlent 25.6.2022 14:54
Óttast að hjónabönd samkynhneigðra og fleiri réttindi séu í hættu næst Frjáslyndir dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna vöruðu við því að hjónabönd samkynhneigðra og aðgangur að getnaðarvörnum gæti verið á meðal annarra réttinda í hættu eftir að rétturinn felldi niður rétt kvenna til þungunarrofs í gær. Einn íhaldssömu dómaranna sagðist vilja endurskoða þau réttindi í séráliti sínu. Erlent 25.6.2022 14:39
Fornmunum Asteka bjargað á þurrt Fornleifafræðingum í Mexíkó hefur tekist að bjarga á land 2.500 fornmunum úr menningarríki Asteka sem uppi var fyrir meira en 500 árum. Allan þennan tíma hafa munirnir legið í vatni, en með hjálp nýrrar tækni þar sem gervisykur leikur stórt hlutverk er hægt að varðveita þá áfram á þurru. Erlent 25.6.2022 14:31
Telja árásina hryðjuverk íslamista Norska leyniþjónustan PST lítur á skotárás sem kostaði tvö mannslíf í miðborg Oslóar í nótt sem hryðjuverk öfgafulls íslamista. Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkahættu var hækkað í kjölfar árásarinnar. Erlent 25.6.2022 13:44
Vaknaði við þyrlur í Osló í nótt: „Mikill óhugur í fólki“ Íslendingur í Osló segir mikinn óhug í fólki eftir skotárás sem gerð var á hinsegin skemmtistað þar í nótt. Hann man ekki eftir öðru eins síðan að hryðjuverkaárásin í Útey og Osló var framin árið 2011 þar sem 69 létu lífið. Erlent 25.6.2022 13:31
Rússar létu sprengjum rigna yfir Luhansk Rússar reyna nú eftir fremsta megni að ná borgunum Sieveródonetsk og Lysychansk í Luhanskhéraði á sitt vald. Þeir létu sprengjum rigna yfir borgirnar í morgun og hæfðu meðal annars efnaverksmiðju þar sem hundruð almennra borgara hafa leitað skjóls undanfarið. Erlent 25.6.2022 12:05