Fótbolti

Stuðningsmenn Inter bauluðu á Mourinho

NordcPhotos/GettyImages

Jose Mourinho fékk í dag að upplifa þá óskemmtilegu reynslu að láta stuðningsmenn Inter baula á sig. Þjálfarinn uppskar reiði þeirra þegar hann ákvað á síðustu stundu að hafa æfingu liðsins í dag á bak við luktar dyr.

Fólkið tók ekki vel í þessa ráðstöfun og baulaði á stjórann litríka. Hann sagðist skilja gremju þeirra, en sagðist vilja fá næði til æfinga.

"Ég virði stuðningsmennina, en þeir vita að þetta eru ekki bara stuðningsmenn sem eru að koma hingað til að fylgjast með. Þarna eru líka þjálfarar og útsendarar annara liða og mig langaði til að æfa eitt og annað í kring um föst leikatriði í dag. Fyrsti æfingaleikurinn okkar er á morgun og stuðningsmennirnir hafa nú fengið að sjá okkur á fyrri æfingum," sagði Mourinho.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×