Fótbolti

Mutu þarf að greiða Chelsea himinháa sekt

Elvar Geir Magnússon skrifar
AdrianMutu.
AdrianMutu.

Adrian Mutu, leikmaður Fiorentina, þarf að greiða Chelsea 9,6 milljónir punda í miskabætur. Það eru um 1,4 milljarður íslenskra króna.

Mutu var rekinn frá enska félaginu og samningi hans sagt upp í október 2004, eftir að Rúmeninn varð uppvís að neyslu kókaíns.

Mutu var keyptur til Chelsea frá Parma fyrir 15 milljónir punda 2003. Mutu ætlar ekki að sætta sig við þessa niðurstöðu FIFA og fara með málið alla leið í dómstólum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×