Fótbolti

Vieira frá út árið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Patrick Vieira í leik með Inter í síðasta mánuði.
Patrick Vieira í leik með Inter í síðasta mánuði. Nordic Photos / AFP

Patrick Vieira mun ekki spila meira með Inter á þessu ári vegna meiðsla sem hann hlaup í leik Inter og Juventus í síðasta mánuði.

Vieira var aðeins inn á vellinum í fáeinar mínútur þar sem hann kom inn á sem varamaður undir lok leiksins en engu að síður tóku meiðslin sig upp.

Vieira gat lítið spilað á síðasta keppnistímabili vegna þrálátra meiðsla og hefur einungis verið í byrjunarliði Inter í átta leikjum á þessu tímabili.

Góðu fréttirnar fyrir Jose Mourinho, stjóra Inter, eru hins vegar þær að Christian Chivu er orðinn leikfær á ný eftir meiðsli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×