Fótbolti

Donadoni opinberlega hættur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Marcello Lippi er að fara að taka við ítalska landsliðinu ef eitthvað er að marka fjölmiðla á Ítalíu.
Marcello Lippi er að fara að taka við ítalska landsliðinu ef eitthvað er að marka fjölmiðla á Ítalíu.

Ítalskir fjölmiðlar búast fastlega við því að Marcello Lippi muni taka við ítalska landsliðinu á nýjan leik. Roberto Donadoni er hættur með liðið en það var opinberað í dag.

Donadoni var kallaður inn á fund ítalska knattspyrnusambandsins í dag og honum tilkynnt að starfskrafta hans væri ekki óskað. Ítalía féll úr leik í átta liða úrslitum Evrópumótsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×