Fótbolti

Aquilani ekki á leiðinni til Liverpool

Ómar Þorgeirsson skrifar
Alberto Aquilani.
Alberto Aquilani. Nordic photos/AFP

Umboðsmaður ítalska landsliðsmannsins Alberto Aquilani hjá Roma segir nákvæmlega ekkert hæft í þeim sögusögnum í ítölskum og breskum fjölmiðlum síðustu daga um að leikmaðurinn sé á leiðinni til Liverpool.

„Alberto til Liverpool? Nei tölum frekar saman í alvöru. Þetta er bara slúður af verstu tegund og ekki svaravert. Leikmaðurinn er nýbúinn að framlengja samning sinn við Roma til ársins 2013 og er ekki á förum frá félaginu," segir umboðsmaðurinn Franco Zavaglia í samtali við netmiðilinn Romagiallorossa.com.

Hinn 25 ára gamli Aquilani var frá vegna meiðsla á stóran hluta síðasta tímabils og vinnur nú hörðum höndum að því að ná fyrri styrk og knattspyrnustjórinn Luciano Spalletti hjá Roma kvaðst í nýlegu viðtali binda miklar vonir við að leikmaðurinn sýndi sitt rétta andlit á næstu leiktíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×