Fótbolti

Inter á eftir Marek Hamsik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Marek Hamsik.
Marek Hamsik.

Slóvakíski landsliðsmaðurinn Marek Hamsik er afar eftirsóttur þessa dagana en Inter, Juventus og Man. Utd hafa öll verið orðuð við þennan 22 ára strák.

Hann spilar með Napoli og hefur slegið í gegn í ítalska boltanum í vetur. Inter hefur opinberlega lýst yfir áhuga á að kaupa strákinn en ekki er víst að félagið fái að kaupa hann.

Napoli er nefnilega afar tregt til þess að selja sína bestu leikmenn en félagið gæti þurft að endurskoða þá afstöðu sína berist félaginu tilboð sem ekki er hægt að hafna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×