Fótbolti

AC Milan gefst upp á Fabiano

Elvar Geir Magnússon skrifar

AC Milan hefur lagt árar í bát í baráttunni um Luis Fabiano, leikmann Sevilla, samkvæmt ítölskum fjölmiðlum. Talsmaður AC Milan segir að viðræðum við spænska félagið hafi verið slitið.

Sevilla vill fá 25 milljónir punda fyrir leikmanninn en tilboð AC Milan hljóðaði aðeins upp á 15 milljónir. Ítalska stórliðið fékk 56 milljónir punda fyrir söluna á Kaka til Real Madrid og er það talin ástæða þess að Sevilla hefur blásið upp verðmiðann á Fabiano.

Einhverjar kenningar eru þó í gangi um að AC Milan sé alls ekkert búið að gefast upp í baráttunni um leikmanninn, þetta sé aðeins útspil til að fá Sevilla til að lækka verðmiðann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×