Fótbolti

Beckham er í toppformi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Beckham mætir á æfingasvæðið í dag á Audi station-bíl.
Beckham mætir á æfingasvæðið í dag á Audi station-bíl. Nordic Photos/AFP

Styrktarþjálfari AC Milan er afar ánægður með ástandið á David Beckham sem kom til Mílanóborgar í gær og byrjar að spila með Milan eftir áramót.

Beckham var ekkert að eyða tímanum í rugl heldur mætti beint á æfingu ásamt því að gangast undir læknisskoðun.

Hann verður heldur ekkert í hangikjötinu í dag því Leonardo, þjálfari Milan, er með tvær æfingar í dag.

„Hann lítur gríðarlega vel út en við verðum að gefa honum smá tíma áður en við vitum fullkomlega hvert ástand hans er," sagði styrktarþjálfarinn.

„Fyrir utan það þá er Beckham alltaf almennilegur, boðinn og búinn að gera það sem hann er beðinn um og fagmaður fram í fingurgóma."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×