Fótbolti

Inzaghi með tvennu í fyrsta leik AC Milan undir stjórn Leonardo

Ómar Þorgeirsson skrifar
Filippo Inzaghi.
Filippo Inzaghi. Nordic photos/AFP

Gamli refurinn Filippo Inzaghi stal senunni með því að skora bæði mörk AC Milan í 2-0 sigri gegn Varese í fyrsta leik undirbúningstímabilsins og fyrsta leik knattspyrnustjórans Leonardo með AC Milan.

Brasilíumaðurinn Leonardo lét AC Milan spila leikkerfið 4-3-3 þar sem Gennaro Gattuso og Mathieu Flamini spiluðu sem varnarmiðjumenn og Marco Boriello, Ronaldinho og Inzaghi voru í framlínunni.

Þá lék Alessandro Nesta í vörninni hjá AC Milan í dag eftir að hafa misst af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×