Fótbolti

Ranieri heitur fyrir landsliðsþjálfarastarfinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Claudio Ranieri, þjálfari Roma, hefur viðurkennt að sig dreymi um að taka við þjálfun ítalska landsliðsins.

Ranieri er sterklega orðaður við starfið en Marcello Lippi hættir að öllum líkindum með liðið í sumar.

„Mig langar að taka að mér þetta starf. Ég hef sagt það áður og það hefur ekkert með Roma að gera. Þetta er einn af mínum draumum, að fara með ítalska landsliðið á lokakeppni EM eða HM," sagði Ranieri.

„Nú er ég samt að þjálfa Roma og því verkefni er ekki lokið. Við þurfum að halda fókus og ég hef trú á okkur."



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×