Fótbolti

Cassano fer til AC Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það er nú orðið ljóst að Antonio Cassano mun ganga í raðir AC Milan og spila með liðinu eftir áramót. Búið er að ganga frá öllum pappírum og Sampdoria því laust við leikmanninn sem það sagði hreinlega upp.

Cassano hefur fengið leyfi til þess að fara með Milan til Dubai þann 27. desember en samningur hans við félagið tekur ekki gildi fyrr en 3. janúar. Hann verður svo formlega kynntur sem leikmaður Milan daginn eftir.

Cassano mun skrifa undir þriggja ára samning við Milanóliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×