Fótbolti

Huntelaar vill vera áfram hjá Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Hollenski framherjinn Klaas-Jan Huntelaar er hættur að hugsa um að komast burt frá AC Milan og ætlar þess í stað að festa sig í sessi hjá félaginu.

Minnstu munaði að Huntelaar færi frá félaginu í janúar en það gerðist ekki þar sem framkvæmdastjórinn, Adriano Gallian, sannfærði hann um að vea áfram. Í kjölfarið hefur hann fengið fleiri tækifæri og staðið sig vel.

„Þið ættuð að spyrja Galliani að því hvað hann sagði við mig sem fékk mig til þess að vera hér áfam," sagði brosandi Huntelaar.

„Hann er fyndinn og fær mig alltaf til þess að hlæja. Lífið hér var ekki auðvelt í fyrstu. Ég skildi ekki félaga mína og leikkerfið átti illa við mig. Ég hef aðlagast betur, mér líkar vel við ítalska boltann og vil ná árangri hjá þessu félagi."





 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×