Fótbolti

Zlatan setur á sig Van Basten-grímu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Forsíða Gazzetta dello Sport í morgun. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Forsíða Gazzetta dello Sport í morgun. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.

Forsíða blaðsins La Gazzetta dello Sport á Ítalíu í morgun hefur vakið athygli en þar sést Zlatan Ibrahimovic leikmaður AC Milan vera að setja á sig grímu með andliti Marco Van Basten.

Blaðið ýjar þannig að því að þeir séu einn og sami maðurinn. Hollendingurinn Van Basten er lifandi goðsögn í augum stuðningsmanna Milan en hann lék með liðinu til 1993.

Arrigo Sacchi, fyrrum þjálfari AC Milan, skrifar pistil í blaðinu. Þar segist hann ekki ætla að fullyrða um það hvor sé betri. Hann segir þó að mikilvægi Zlatans fyrir lið Milan sé alls ekki minna en mikilvægi Van Basten á sínum tíma.

„Ef hann heldur áfram á sömu braut mun Ibra jafna afrek Van Basten. Hann er enn að taka framförum og er að breytast í heilsteyptari fótboltamann og meiri liðsmann," skrifar Sacchi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×