Fótbolti

Hamsik áfram hjá Napoli - hafnar Inter og Chelsea

Ómar Þorgeirsson skrifar
Marek Hamsik.
Marek Hamsik. Nordic photos/AFP

Miðjumaðurinn eftirsótti Marek Hamsik hjá Napoli hefur þvertekið fyrir sögusagnir um að hann sé á förum frá félaginu næsta sumar.

Hamsik hefur verið í frábæru formi með Napoli undanfarið og það hefur ekki farið framhjá stórliðum á borð við Inter og Chelsea sem eru bæði sterklega orðuð við kappann.

„Hafa Inter og Chelsea áhuga á mér? Það getur svo sem vel verið og það er bara gaman af því. Ég er hins vegar alveg rólegur og mun hitta forráðamenn Napoli á næstu vikum með nýjan samning í huga. Ég mun klárlega gera nýjan samning við Napoli og get ekki beðið eftir því að það gangi í gegn," segir Hamsik í viðtali við ítalska fjölmiðla í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×