Fótbolti

Stuðningsmenn Lazio fögnuðu sigri Inter gegn sínum mönnum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Walter Samuel var ánægður með markið sitt.
Walter Samuel var ánægður með markið sitt.

Inter er með tveggja stiga forystu á Roma í ítalska boltanum þegar tvær umferðir eru eftir. Inter vann 2-0 útisigur gegn Lazio í kvöld og trónir enn á toppnum.

Lazio eru erkifjendur Roma. Það var því sérkennilegt andrúmsloft í kvöld þar stuðningsmenn Lazio í stúkunni héldu með Inter enda vilja þeir síst af öllu að Roma hrósi sigri í deildinni.

Inter náði 2-0 sigri við þessar skringilegu kringumstæður en Walter Samuel og Thiago Motta skoruðu mörkin. Lazio er í sextánda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×