Fótbolti

Balotelli ætlar sér að komast til AC Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mario Balotelli virðist ekki vera allt of ánægður í herbúðum Man. City því hann gefur AC Milan undir fótinn hvað eftir annað.Nú hefur Balotelli lýst því yfir að hann muni spila með Zlatan Ibrahimovic.

"Ég mun biðja Zlatan að hringja reglulega í mig svo á endanum fái hann sínu framgengt og spili með mér hjá Milan," sagði Balotelli en Zlatan hefur ítrekað hvatt Balotelli til þess að koma.

Ítalinn virðist þó gera sér grein fyrir að Man. City ætli ekki að selja sig strax því hann ætlar að afreka eitt og annað áður en hann yfirgefur Manchester.

"Ég vil vinna ensku úrvalsdeildina og Evrópudeildina. Ég hef aldrei unnið Evrópudeildina og held við séum sigurstranlegastir í þeirri keppni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×