Fótbolti

Forseti Roma: Ég mun styðja Inter í kvöld

Rosella Sensi, forseti Roma.
Rosella Sensi, forseti Roma.
Rosella Sensi, forseti Roma, segist ætla styðja Inter í leiknum gegn FC Bayern er liðin mætast í úrslitaleik Meistaradeildar evrópu í kvöld. Roma var í harðri baráttu við Inter um ítalska titilinn sem endaði með ekki eins og Sensi hefði óskað. Þrátt fyrir það segist forsetinn styðja Mourinho og félaga. „Þó svo að ég sé ekki sátt við það hvernig deildin endaði mun ég styðja Inter-liðið í kvöld," sagði Rosella Sensi. „Ég vill alltaf hvetja ítala en auðvitað situr það í manni hvernig fór á þessu tímabili og Inter ekki beint fyrsta liðið sem ég vill styðja hvað mest," bætti Sensi við. „Lítum á þetta þannig að þeir eiga séns á því að tryggja fjórða liðið inn í meistaradeildina með sigrinum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×