Fótbolti

Benitez vill vinna með Balotelli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Rafa Benitez, þjálfari Inter, reyndi í dag að gera lítið úr þeim sögusögnum að argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano myndi fylgja honum frá Liverpool til Inter.

Sú saga hefur verið á sveimi í allt sumar og er ekki að deyja.

"Mascherano til Inter? Inter hefur áhuga á öllum hágæðaleikmönnum. Við þekkjum hann vel en yfirmenn félagsins taka ákvörðun í leikmannamálum. Ég vil vinna með þeim leikmönnum sem eru fyrir hjá félaginu," sagði Benitez sem bíður spenntur eftir því að vinna með Balotelli sem er sterklega orðaður við félög á Englandi.

"Ég vil kynnast Balotelli og fá tækifæri til að meta hann. Ég þarf að kynnast og meta alla leikmennina. Balotelli er hágæðaleikmaður sem vill spila og vinna. Það er mikilvægur eiginleiki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×