Fótbolti

Erfitt fyrir Benitez að feta í fótspor Mourinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segir að Rafa Benitez muni eiga erfitt uppdráttar hjá Inter. Hann segir það ekki vera auðvelt verk að feta í fótspor manns eins og Jose Mourinho.

"Það er erfitt að taka við af sigursælum mannin eins og Mourinho. Sá sem mun taka við af mér hjá United mun lenda í sömu vandræðum. Það verður samt alltaf erfitt að vinna Inter. Evrópumeistararnir eiga alla mína virðingu. Ég veðjaði á Inter gegn Barcelona enda undirbjó Jose sig eins og meistari," sagði Ferguson.

Skoski stjórinn viðurkennir að hann sé mjög hrifinn af Mario Balotelli sem var orðaður við Man. Utd en endaði hjá Man. City.

"Hann hefur ótrúlega hæfileika og getur náð alla leið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×