Fótbolti

Leonardo: Ég er ekki stuðningsmaður Inter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ekki eru allir stuðningsmenn ítalska félagins Inter ánægðir með ráðningu Brasilíumannsins Leonardo sem þjálfara enda þjálfaði hann lið erkifjendanna í AC Milan áður. Þess utan lék hann lengi vel með AC.

Leonardo hefur verið hreinskilinn í viðtölum síðan hann tók við liðinu og viðurkennir fúslega að vera ekki stuðningsmaður Inter.

"Ég eyddi 13 árum hjá Milan og er þakklátur félaginu. Ég er samt ekki með neitt samviskubit yfir því að vinna fyrir Inter. Það er mikil áskorun að taka við Inter og ég gat ekki hafnað þessu starfi," sagði Leonardo.

"Ég get alveg verið heiðarlegur og sagt að ég sé ekki stuðningsmaður Inter. Það er ekki nauðsynlegt að eiga allt sameiginlegt til þess að vinna saman."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×