Fótbolti

Milito: Mikilvægasta mark sem ég hef skorað - myndband

Elvar Geir Magnússon skrifar
Milito fagnar markinu mikilvæga.
Milito fagnar markinu mikilvæga.

„Þetta er mikilvægasta mark ferils míns. Við erum í skýjunum og eigum það skilið," sagði Diego Milito sem tryggði Inter 1-0 sigur á Siena og þar með Ítalíumeistaratitilinn.

„Við fórum illa með færin í fyrri hálfleiknum en sem betur fer fór boltinn inn þarna. Ég get ekki lýst því hversu glaður ég er."

Smelltu hér til að skoða mark Milito.

Julio Cesar, markvörður Inter, var einnig í sigurvímu eftir leik. „Þetta var frábær leikur. Þetta var leikur sem réði úrslitum í öllu mótinu. Þetta er frábær tilfinning," sagði Cesar.

„Nú fögnum við af mikilli innlifun en svo förum við einbeitum okkur að næsta verkefni. Framundan er úrslitaleikur í Meistaradeildinni um næstu helgi," sagði fyrirliðinn Javier Zanetti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×