Fótbolti

Sneijder: Fer aldrei aftur til Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Wesley Sneijder, leikmaður Evrópumeistara Inter, segir að það komi ekki til greina að hann muni einn daginn snúa aftur til Real Madrid á Spáni.

Sneijder var seldur frá Real til Inter í fyrra og varð hann þrefaldur meistari á síðasta tímabili með síðarnefnda liðinu undir stjórn Jose Mourinho, sem nú er stjóri Real.

„Það mun ekki gerast að ég fari aftur til Real. Ég vil ekki fara til félags sem kom svona illa fram við mig," sagði Sneijder í samtali við franska fjölmiðla.

„Mourinho? Eitt ár með honum er eins og áratugur með öðrum þjálfurum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×