Fótbolti

Moratti vill ekki ræða um Benítez

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gengur Rafa Benítez burt frá Inter?
Gengur Rafa Benítez burt frá Inter?

Rafa Benítez stýrði Inter til heimsmeistaratitils félagsliða í gær og notaði svo tækifærið á blaðamannafundi eftir leikinn til að væla yfir því að fá ekki nægilega mikinn pening til leikmannakaupa.

Benítez vill fá peninga til að styrkja leikmannahópinn í janúar. Ef stjórnin lætur hann ekki fá þá segist hann íhuga að að hætta þjálfun liðsins.

Sem stendur er Inter í sjöunda sæti ítölsku deildarinnar og fyrir heimsmeistaramót félagsliða var talað um að aðeins sigur á mótinu gæti bjargað starfinu hjá Benítez.

Massimo Moratti, forseti Inter, vill ekki ræða um málefni Benítez. „Eina sem ég vil segja er að tímasetningin á þessum ummælum hans var mjög slæm," sagði Moratti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×