Fótbolti

Xavi finnst furðulegt að Sneijder sé ekki meðal þriggja efstu

Elvar Geir Magnússon skrifar

„Hann átti stórkostlegt ár," segir miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona um Wesley Sneijder hjá Inter. Mörgum finnst furðulegt að Sneijder sé ekki einn þeirra þriggja sem eiga möguleika á að hljóta gullknöttinn; vera knattspyrnumaður ársins hjá FIFA.

Xavi tekur undir það. „Ég veit að menn eru reiðir á Ítalíu því Sneijder er ekki meðal þriggja efstu. Ég skil það vel, mér finnst það líka furðulegt," segir Xavi.

Sneijder vann allt sem hægt er að vinna með Inter auk þess sem hann átti frábært heimsmeistaramót með hollenska landsliðinu sem komst alla leið í úrslitin.

Auk Xavi eru það Andres Iniesta og Lionel Messi sem koma til greina en þeir spila allir þrír með Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×