Fótbolti

Barcelona og Juventus vilja fá Pirlo

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pirlo með Robinho og Ronaldinho.
Pirlo með Robinho og Ronaldinho.
Svo gæti farið að AC Milan missi miðjumanninn Andrea Pirlo í sumar. Þá rennur samningur hans við félagið út og hann er ekki búinn að skrifa undir nýjan samning.

Bæði Barcelona og Juventus eru sögð hafa áhuga á kappanum sem orðinn er 31 árs gamall.

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, vill endilega bæta Pirlo í vopnabúr sitt svo hann geti skipt miðjumönnunum oftar út en mikið álag er venjulega á þeim Xavi og Iniesta.

Pirlo er eflaust að skoða samninga í rólegheitum þessa dagana enda meiddur og hefur lítið að gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×