Fótbolti

Aquilani gæti snúið aftur til Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aquilani er með háan verðmiða á sér.
Aquilani er með háan verðmiða á sér.
Svo gæti farið að Ítalinn Alberto Aquilani snúi aftur í herbúðir Liverpool í sumar. Það stendur nefnilega í Juventus að greiða uppsett verð fyrir leikmanninn.

Liverpool vill fá 16 milljónir evra fyrir miðjumanninn og það er meira en Juve er til í að greiða þó svo Aquilani hafi staðið sig afar vel með liðinu.

Umboðsmaður Aquilani segir að skjólstæðingur sinn vilji helst spila á Ítalíu en muni gera aðra tilraun hjá Liverpool fari svo að ekkert ítalskt lið sé til í að greiða þessa upphæð fyrir leikmanninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×