Fótbolti

Eto’o skoraði tvö þegar Inter varð ítalskur bikarmeistari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Samuel Eto'o fagnar með Marco Materazzi í kvöld.
Samuel Eto'o fagnar með Marco Materazzi í kvöld. Mynd/AP
Samuel Eto’o skoraði tvö mörk fyrir Inter í kvöld þegar liðið vann 3-1 sigur á Palermo í bikarúrslitaleiknum á Ítalíu. Eto’o skoraði bæði mörkin sín eftir stoðsendingar frá Hollendingnum Wesley Sneijder.

Samuel Eto'o kom Inter í 2-0 en hann skoraði alls 37 mörk á tímabilinu í öllum keppnum. Ezequiel Munoz minnkaði muninn fyrir Palermo á 88. mínútu áður en hann var síðan rekinn útaf og það var síðan varamaðurinn Diego Milito sem innsiglaði sigurinn.

Þetta er í fjórða sinn á síðustu sjö árum sem Inter verður bikarmeistari en liðið vann einnig bikarinn á síðustu leiktíð. Brasilíumanninum Leonardo tókst því að skila einum titli í hús á sínu fyrsta ári sem þjálfari Inter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×