Fótbolti

Moratti ósáttur við ummæli Sneijder

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Moratti fagnar ítalska bikarnum ásamt Javier Zanetti
Moratti fagnar ítalska bikarnum ásamt Javier Zanetti Mynd/Getty Images
Massimo Moratti forseti ítalska knattspyrnufélagsins Inter er ekki sáttur við ummæli Wesley Sneijder. Hollenski miðjumaðurinn sagði aðeins æðri máttarvöld vita hvar framtíð hans lægi. Hann hefur verið orðaður við Chelsea og Manchester United að undanförnu.

„Ég elska Inter af öllu hjarta en aðeins guð veit hvar framtíð mín liggur, sagði Sneijder samkvæmt Sky fréttastofunni.“

Moratti sagði við fréttamenn fyrir utan skrifstofur Inter að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með ummæli Sneijder.

Ummæli hans hafa virkað sem olía á eld sögusagna þess efnis að Sneidjer gangi til liðs við Chelsea eða Manchester United í sumar.

Moratti segist ennfremur standa þétt við bakið á þjálfara Inter, Brasilíumanninum Leonardo. Inter hefur verið orðað við argentínska þjálfarann Marcelo Bielsa.

„Við höfum ekki haft samband við Bielsa, ég þræti fyrir það. Leonardo er frábær þjálfari,“ sagði Moratti við fréttamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×