Fótbolti

Markvörður fagnaði of snemma

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ótrúlegt atvik átti sér stað í 7. deild ítalskrar knattspyrnu nýverið. Markvörðurinn Loris Angeli hjá Dro hefði betur sleppt fagnaðarlátum sínum þegar vítaspyrna andstæðingsins small í slánni. Angeli hljóp í burtu en á meðan tók boltinn sig til, skoppaði nokkrum sinnum og lak inn í markið.

Leikurinn var í umspili um sæti í 6. deild og réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Í fjórðu umferð hennar skaut Michael Palma, leikmaður Termeno, í slánna og boltinn hrökk hátt út í teiginn. Angeli fagnaði og Palma féllust hendur. Dómarinn og áhorfendur fylgdust þó vel með þegar boltinn fann sér leið í markið.

Til að bæta gráu ofan á svart misnotaði leikmaður Dro næstu spyrnu sína og Termeno tryggði sér sæti í 6. deild að ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×