Fótbolti

Sneijder áfram hjá Inter

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sneijder fagnar í úrslitaleik bikarins gegn Palermo
Sneijder fagnar í úrslitaleik bikarins gegn Palermo Mynd/Getty Images
Wesley Sneijder hefur blásið á allar sögusagnir þess efnis að hann sé á förum frá Inter. Hann hefur ítrekað verið orðaður við Chelsea og Manchester United undanfarið en segist vilja vera áfram hjá Inter.

„Ég er mjög hamingjusamur hjá Inter og sé enga ástæðu til þess að fara," sagði Sneijder á heimasíðu Inter.

Manchester United leitar logandi ljósi að skapandi miðjumanni eftir að Paul Scholes lagði skóna á hilluna í lok tímabils. Sneijder þótti líklegur til þess að fylla í skarðið en Sneijder líður vel í Mílanó.

„Mílanó er yndisleg borg, myndræn og glæsileg. Ég elska borgina."

Sneijder glímdi við meiðsli á nýliðnu tímabili. Hann spilaði aðeins 25 leiki og skoraði í þeim fjögur mörk. Inter varð bikarmeistari og endaði í öðru sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×