Fótbolti

Bojan Krkic á leið til Roma

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bojan er aðeins tvítugur og gjaldgengur á EM U-21 árið 2013
Bojan er aðeins tvítugur og gjaldgengur á EM U-21 árið 2013 Mynd/Getty Images
Bojan Krkic leikmaður Barcelona er sagður á leið til Roma. Samkvæmt útvarpsstöðinni Catalunya Radio hafa félögin komist að samkomulagi um félagaskiptin og er kaupverðið talið vera um 10 milljón evrur.

Luis Enriqure nýráðinn þjálfari Roma þekkir vel til framherjans smávaxna. Enrique var þjálfari B-liðs Börsunga áður en hann tók við Roma. Talið er að talsmaður Barcelona muni tilkynna formlega um fyrirhuguð félagsskipti síðar í dag.

Bojan er um þessar mundir með spænska landsliðinu á Evrópumóti U-21 landsliða í Danmörku. Þar hefur hann að mestu vermt varamannabekkinn líkt og hlutskipti hans hefur verið hjá Barcelona undanfarin ár. Talið er að Bojan skrifi undir hjá Roma að mótinu loknu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×