Fótbolti

Buffon vill þjálfa landslið Bandaríkjanna eða Kína

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hinn 33 ára markvörður Juventus, Gianluigi Buffon, hefur hug á því að fara út í þjálfun eftir að ferlinum lýkur og hann segist hafa áhuga á að þjálfa landslið Bandaríkjanna eða Kína.

"Ég hef aldrei spáð í að enda ferilinn minn sem leikmaður í Bandaríkjunum. Ég mun spila hjá Juventus eins lengi og félagið treystir mér. Ég hef aftur þá brjáluðu hugmynd að eftir þrjú eða fjögur ár verði ég orðinn landsliðsþjálfari Bandaríkjanna eða Kína," sagði Buffon.

Leikmaðurinn var orðaður við brottför frá Juve í sumar líkt og svo oft áður en hann hefur haldið tryggð við félagið síðan hann kom frá Parma á sínum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×