Fótbolti

Vidal kominn til Juventus

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arturo Vidal.
Arturo Vidal.
Juventus hefur fest kaup á Arturo Vidal og það gleður þjálfara liðsins, Antonio Conte, afar mikið. Leikmaðurinn kemur frá Bayer Leverkusen á 12,5 milljónir evra.

Leikmaðurinn stóð sig afar vel með Síle í Copa America og Conte telur að hann verði lykilmaður hjá Juve í vetur.

"Vidal er fullkominn miðjumaður. Hann er kraftmikill leikmaður, duglegur með mikil gæði í sínum leik. Hann skoraði tíu mörk í þýsku deildinni og mun styrkja okkur gríðarlega," sagði Conte.

Conte segir að Juve ætli að kaupa enn fleiri leikmenn áður en sumarið er á enda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×